Comparison of pneumococcal biofilm formation of isolates from recurrent otitis media, invasive disease and healthy children
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Pneumókokkar (Streptococcus pneumoniae) eru mikilvægir sýkingavaldar í mönnum um allan heim, þó sérstaklega í börnum undir fimm ára aldri og eldra fólki. Þeir eru algeng orsök sýkinga í efri öndunarvegum sem geta leitt til þrálátra miðeyrnasýkinga, lungnabólgu, heilahimnubólgu, blóðsýkingar o.fl. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (WHO: World Health Organization) látast árlega allt að ein milljón barna undir fimm ára aldri úr pneumókokkasýkingum í heiminum. Beratíðni pneumókokka er langhæst meðal barna en oft er talað um að nefkok barna sé vistfræðileg uppspretta pneumókokkasýkinga. Örveruþekjumyndun er einfalt ferli sem bakteríur nota til að lifa af, en örveruþekjur veita þeim mjög stöðugt og verndandi umhverfi. Örveruþekjur veita þannig bakteríum sem hana mynda skjól og auðvelda mjög dreifingu á miklu magni af bakteríum. Bakteríur í örveruþekjum eru vel varðar og torvelda örveruþekjur sýklalyfjum aðgang, auk þess að bakteríur eru tiltölulega óvirkar þar. Það gerir það að verkum að sýklalyf sem beinast gegn bakteríum í skiptingu virka verr en ella og þ.a.l. getur verið erfitt að ráða niðurlögum sýkingarinnar. Gagnagrunnur Sýklafræðideildarinnar, ásamt því stóra pneumókokka safni sem þar er, veitir okkur einstakt tækifæri til að kanna hvort pneumókokkar sem valda endurteknum miðeyrnasýkingum séu líklegri til að mynda meiri örveruþekjur heldur en stofnar frá ífarandi sýkingum og frá nefkoki heilbrigðra leikskólabarna (berum). Markmið þessarar rannsóknar var því að kanna hæfileika pneumókokka frá endurteknum miðeyrnasýkingum, ífarandi sýkingum og nefkoki heilbrigðra barna til að mynda örveruþekjur með og án H. influenzae í míkrótíter bökkum. Þetta var gert til að kanna hvort munur væri á hlutfalli örveruþekjumyndandi stofna milli sýnahópa, til að athuga hvort munur væri á örveruþekjumyndun pneumókokka í samrækt með H. influenzae og til þess að kanna hvaða hjúpgerðir mynduðu þykkustu örveruþekjurnar. Einnig voru áhrif meðferðar með amoxisillíni í þykkum vs. engum örveruþekjum könnuð til þess að sjá hvort sýklalyfin næðu að vinna á bakteríum í örveruþekjum. Hæfileikar pneumókokka með og án festiþráða til að mynda örveruþekjur á frumurækt lungnaþekjufrumna voru einnig kannaðir til þess að athuga hvort stofnar með festiþræði næðu betur að bindast við þekjuna heldur en stofnar án festiþráða. Stofnar af hjúpgerðum 19F, 23F, 6A, 6B og 14 frá endurteknum miðeyrnasýkingum (33 stofnar), ífarandi sýkingum (25 stofnar) og heilbrigðum berum (50 stofnar) frá 0-6 ára börnum voru ræktaðir upp í míkrótíter bökkum og örveruþekjumyndun þeirra ljósmæld í ljósmæli. Einnig voru tveir H. influenzae stofnar frá miðeyrnasýkingum barna notaðir til samræktar. Þeir stofnar sem mynduðu þykkastar örveruþekjur voru af hjúpgerðum 6B og 6A. Stofnar af hjúpgerð 19F mynduðu þunnar örveruþekjur og stofnar af hjúpgerðum 14 og 23F mynduðu engar örveruþekjur. Samrækt pneumókokka og H. influenzae hafði ekki eins mikil örvandi áhrif á örveruþekjumyndun eins og búist var við. Misjafnt var á milli hjúpgerða pneumókokka og H. influenzae stofna hvaða áhrif samræktin hafði. Stofnar frá miðeyra voru í flestum tilvikum örveruþekjumyndandi en þeir mynduðu örveruþekjur í 70% tilvika, stofnar frá berum í 64% tilvika og stofnar frá ífarandi sýkingum í 56% tilvika. Hlutfall þeirra stofna sem mynduðu þykkar örveruþekjur var hæst hjá stofnum frá ífarandi sýkingum, eða 32%, en stofnar frá miðeyra mynduðu þykkar örveruþekjur í 30% tilvika og stofnar frá ífarandi sýkingum í 22% tilvika. FITC litun pneumókokka á lungnaþekjufrumum sýndi hvernig pneumókokkarnir bindast við þekjuna og vaxa ofan í hana. Aðferð við sýklalyfjaprófanir virkaði ekki nógu vel og hana þarf að þróa betur. Rannsóknin sýndi að aðferðin gagnast vel við mat á örveruþekjumyndun eftir hjúpgerðum.
Source: Skemman
Author: Katrín Helga Óskarsdóttir 1980-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7081543552
