Work

I´m just a patient who is unhappy: Experience of involuntary admission- and treatment for individuals with mental illnesses

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu fólks með geðsjúkdóma af nauðungarvistun og -meðferð á sjúkrastofnun. Nauðungarvistun þykir umdeilt úrræði enda getur frelsissvipting haft alvarlegar afleiðingar á líf þess sem fyrir henni verður. Niðurstöður erlendra rannsókna um gagnsemi nauðungarvistunar eru ekki samhljóma um nauðsyn slíkrar íhlutunar og hvort hún skili tilætluðum árangri fyrir heilsu og velferð fólks. Í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er ítrekað að skerðing ein og sér réttlæti aldrei frelsissviptingar. Því var mannréttindasjónarhorn á fötlun haft til hliðsjónar í rannsókninni. Rannsóknin er eigindleg og var unnin út frá nálgun Charmaz á grundaðri kenningu. Alls tóku sex einstaklingar þátt og voru þeir valdir með markvissu úrtaki vegna reynslu sinnar af nauðungarvistun. Gagna var aflað með opnum einstaklingsviðtölum sem voru hljóðrituð og afrituð með leyfi viðmælenda. Gögnin voru síðan kóðuð, flokkuð og greind kerfisbundið í hugtakaflokka. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að nauðungarvistanirnar áttu sér ólíkan aðdraganda en viðmælendur voru ýmist neyddir af aðstandendum til þess að leggjast inn, fengnir til að leggjast inn á fölskum forsendum eða þvingaðir af lögreglu inn á geðdeild. Viðmælendur upplifðu nauðungarvistunina erfiða og þótt sum þeirra teldu að íhlutunin hefði hugsanlega verið nauðsynleg hefðu þau öll viljað sjá fjölbreyttari nálgun í meðferð sinni. Þau álitu meðferðina einhæfa þar sem aðaláhersla væri á lyfjagjöf. Aðbúnaður, virkni og framkoma starfsfólks hafði töluverð áhrif á upplifun þeirra af nauðungarvistuninni og það sem skipti viðmælendur mestu máli var nærgætni, virðing og skilningur meðan á inngripinu stóð. Huga þarf að bættum starfsháttum og aðbúnaði á geðdeildum til að forðast að fólk upplifi enn meiri þvingun meðan á innlögn stendur. Mikilvægt er að fólk sem er nauðungarvistað sé ekki smættað af sjúkdómseinkennum heldur reynt að tryggja mannréttindi, sjálfræði og mannlega reisn þess.
Source: Skemman
Author: Sigurður Páll Jósteinsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7113725545
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10