Work

Jökulsporðamælingar (Glacier variations) 2025

Year: 2025
Type: article
Abstract: Sjálfboðaliðar Jöklarannsóknafélagsins fóru til sporðamælinga haustið 2025 og alls bárust skýrslur frá um 40 sporðamælistöðum. Gervitunglamyndir voru notaðar til þess að skrá breytingar á jökulsporðum á þeim stöðum sem ekki var unnt að heimsækja. Í þessum pistli eru nýjustu mælingar birtar í töflu, en mæliraðirnar er hægt að nálgast á jöklavefsjánni (www.islenskirjoklar.is). Meirihluti jökulsporða hörfa og er breytingin mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls. Einnig mældist mikið hop á Leirufjarðarjökli og Lambatungnajökli. Örlítill framgangur var í Gígjökli. Sporðar sem ganga út í lón hafa margir hverjir lítið sem ekkert breyst. Heinabergsjökull brotnaði hins vegar mikið upp síðsumars og hefur sporðurinn styst um þrjá kílómetra á síðastliðnum tveimur árum.
Language: English
Open Access status: gold
OpenAlex ID: W7130829280
FWCI:
Cites:
Cited by:
Related to: