Work

Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið (annual report) 2024 flutt á aðalfundi 18. febrúar 2025

Year: 2025
Type: article
Abstract: JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDSSkýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2024 Liðið er sjötugasta og fjórða starfsár Jöklarannsóknafélags Íslands.Margt hefur drifið á daga félagsins á starfsárinu en venju samkvæmt eru fundir, fræðsla og ferðir fyrirferðarmestu viðfangsefni félagsins. UM FÉLAGIÐAðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands var haldinn þriðjudaginn 28.febrúar 2024 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.Tómas Jóhannesson gegndi embætti fundarstjóra.Finnur Pálsson var fundarritari.Engar tillögur bárust að þessu sinni um kjör nýrra heiðursfélaga.Flutt var skýrsla um starfsemi félagsins á starfsárinu 2023, en hana má nálgast í tímaritinu Jökli.Nína Aradóttir, gjaldkeri, lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar.Fjárhagsstaða félagsins er almennt góð, helstu tekjustofnar eru félagsgjöld og gistigjöld af útleigu skála.Félagið á trausta bakhjarla, sem studdu m.a.vorferð með rausnarlegum hætti.Einnig hefur gengið vel að afla styrkja til verkefna sem félagið hefur tekið sér fyrir hendur.Kosning stjórnar og varastjórnar fór fram í samræmi við 4. grein laga félagsins.
Language: English
Open Access status: gold
OpenAlex ID: W7130860323
FWCI:
Cites:
Cited by:
Related to: