Work

The need for parent education : perspectives of infant health care workers

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast betri þekkingu á þörf foreldra 0–2 ára barna fyrir uppeldisfræðslu svo hægt sé að styðja betur við þá í sínu hlutverki. Því var markmiðið að kanna viðhorf starfsfólks í ung- og smábarnavernd á þörf fyrir uppeldisfræðslu til foreldra 0–2 ára barna, sem og að athuga hvaða viðfangsefni tengd uppeldi starfsfólkið teldi brýnast að fræða foreldra um. Þá var markmiðið einnig að skoða reynslu starfsfólks í ung- og smábarnavernd af að veita foreldrum fræðslu um uppeldi. Rannsóknarspurningar voru tvær: 1) Hvernig metur starfsfólk í ung- og smábarnavernd þörf á uppeldisfræðslu fyrir foreldra 0–2 ára barna og hvaða viðfangsefni telur starfsfólk að þurfi að vera í slíkri fræðslu? og 2) Hver er reynsla starfsfólks í ung- og smábarnavernd af að veita foreldrum fræðslu um uppeldi? Fyrstu tvö æviárin á sér stað mikill þroski sem skiptir sköpum út ævina alla og því mikilvægt að foreldrar séu í stakk búnir að styðja við hann og mæta þörfum barna sinna á sem flestum sviðum. Starfsfólk ung- og smábarnaverndar er sá hópur fagfólks sem hittir nánast öll ungbörn og foreldra þeirra, en yfir 90% mæta í skoðanir og bólusetningar fram að átján mánaða aldri. Þörf á uppeldisfræðslu og stuðningi við foreldra þessa aldurshóps hefur lítið verið rannsökuð hér á landi og mikilvægt að skoða hvað þessi faghópur telur að leggja eigi áherslu á í uppeldisfræðslu foreldra 0–2 ára barna. Spurningalisti var sendur á allt starfsfólk ung- og smábarnaverndar á landinu, að undanskilinni einni starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Listinn var því sendur til 200 starfsmanna og svör bárust frá 101 þeirra. Unnið var úr tölulegum gögnum og svör við opnum spurningum voru þemagreind. Helstu niðurstöður sýna að mikil þörf er á aukinni uppeldisfræðslu og stuðningi við foreldra. Þátttakendur töldu þörf á fræðslu um uppeldi, þroska, umönnun, tengslamyndun, foreldrahlutverkið og skjátíma. Einnig töldu þeir að mikilvægt væri að sérfræðingar í uppeldi sæju um þessa fræðslu. Meðal þroskasviða töldu þátttakendur foreldra búa yfir minnstri þekkingu á tilfinningaþroska og tæplega helmingur taldi foreldra gera óraunhæfar kröfur til 0–2 ára barna sinna miðað við aldur og þroska. Tæplega 45% þátttakenda töldu að foreldrum þætti hvorki mikilvægt né lítilvægt eða frekar lítilvægt að verja tíma með barni sínu þar sem það nyti óskiptrar athygli foreldra og meirihluti (73%) taldi að foreldrar hefðu miðlungs eða minni þekkingu á því hvernig stuðla ætti að öruggum geðtengslum. Stór hluti þátttakenda (68%) taldi foreldra ekki nógu meðvitaða um þau áhrif sem upplifanir í frumbernsku hafa á líf og líðan seinna meir. Þá taldi um helmingur þátttakenda foreldra eiga erfitt með að setja börnum sínum mörk og fylgja þeim eftir, meirihluti taldi 1–2 ára börn stjórna foreldrum sínum og rúmur þriðjungur taldi foreldra ofvernda börn sín. Þátttakendur töldu að ung- og smábarnavernd ætti að sjá um að veita foreldrum uppeldisfræðslu og stuðning en um fimmtungi fannst það ekki vera hluti af sínu starfssviði. Flestum þátttakendum þótti þörf á auknu framboði á faglegri uppeldisráðgjöf (82%) ásamt sérmenntuðum einstaklingi til að fræða og styðja foreldra 0–2 ára barna sem hægt væri að vísa foreldrum til (99%). Niðurstöður rannsóknarinnar ættu að gefa góða mynd af því sem starfsfólki ung- og smábarnaverndar finnst um þörf á foreldrafræðslu, styðja við stefnumótun foreldrafræðslu og uppeldisráðgjafar og þá sem starfa við fræðslu til foreldra.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7144563784
Cites: 149
Cited by:
Related to: 10