Year: 2013
Type: article
Abstract: Grýlukvæði frá Sléttuhlíð í Skagafirði er varðveitt í tveimur handritum frá síðara hluta 17. aldar auk fjölda yngri handrita. Í útgáfu Ólafs Davíðssonar frá árinu 1903 er kvæðið eignað séra Guðmundi Erlendssyni frá Felli í Sléttuhlíð (um 1595–1670). Þessi útgáfa gefur þó óljósa mynd af varðveislu kvæðisins og styðst lítið við elsta handritið, AM 147 8vo, sem Ólafur kallar „brot.“ Í handritinu reynist uppskriftin vera heil en hún inniheldur gerð kvæðisins sem er með öðru sniði en finnst í yngri handritum. AM 147 8vo liggur til grundvallar nýrri útgáfu af þessu grýlukvæði sem birtist í greininni. Færð eru rök fyrir því að kvæðið sé það sama og grýlukvæði eignað Ásgrími Magnússyni (d. 1679) sem Jón Samsonarson taldi vera týnt. Grýlukvæðið mun hafa verið ort um 1640 en ómögulegt er að fullyrða um höfund kvæðisins, enda var Ásgrímur mágur Guðmundar og bjó í næsta nágrenni í Höfða á Höfðaströnd. Kvæðið er vísbending um náin tengsl milli Guðmundar og Ásgríms og undirstrikar mikilvægi fjölskyldusambanda í íslensku bókmenntalífi 17. aldar.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Author: Parsons, Katelin Marit
Language: English
Subfield: History
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Keywords: Skagafjörður, manuscript transmission
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7203567315
