Work

Skammtaleiðréttingar á varmafræði óafstæðilegra svarthola

Year: 2026
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um þyngdarskammtafræði. Hún kannar djúpstæð tengsl sem eru til staðar milli þyngdarfræði eins og henni er lýst í almennu afstæðiskenningunni og hornrækinnar skammtasviðsfræði í einni lægri rúmvídd. Þessi samsvörun nefnist þyngdarfræðileg heilmyndun og hefur ýmsar birtingarmyndir, en ein sú einfaldasta felur í sér að þyngdarfræði í tvívíðu tímarúmi með fastan neikvæðan krappa sé jafngild hornrækinni skammtasviðskenningu sem býr á jaðri þess. Í ritgerðinni er síðan rannsakað hvernig þessi samsvörun og skyldar hugmyndir taka á sig nýja mynd þegar horfið er frá hefðbundnum afstæðilegum samhverfum yfir í óafstæðilegar samhverfur, svo sem Galíleó-, Carroll- og Lifshitz-samhverfur. Meginuppistaða ritgerðarinnar eru þrjár rannsóknagreinar sem fjalla um ólíka þætti óafstæðilegrar þyngdarfræði. Fyrsta greinin fjallar um Carroll-strengjafræði, þar sem athugað er hvernig lýsa megi strengjum í markgildi þar sem hraði ljóss stefnir á núll, sem er viðeigandi lýsing í grennd við sjóndeild svarthola og á jaðri tímarúmsins. Önnur greinin fjallar um skammtafræðilega leiðréttingarliði við varmafræði tvívíðs þinilsviðslíkans sem fæst með víddarlækkun á Lifshitz-svartholi. Þar er markmiðið að varpa ljósi á hvernig varmafræðilegir skammtaeiginleikar svarthola hegða sér þegar horfið er frá hefðbundnum afstæðilegum samhverfum. Þriðja greinin fjallar um óafstæðilegt Galíleó-de Sitter rúm. Þar er leitast við að skilja betur óafstæðilega Newton-Cartan rúmfræði og afleiðingar hennar fyrir heimsfræði þar sem afstæðilegar forsendur eru ekki lengur til staðar í sinni hefðbundnu mynd. Auk greinanna þriggja inniheldur meginmál ritgerðarinnar alþýðlegan inngang. Þar má finna hugleiðingar um það hvers vegna grunnrannsóknir eru mikilvægar fyrir mannkynið og jafnframt stutta kynningu fyrir hinn almenna lesanda á því fræðasviði í háorkueðlisfræði sem greinarnar leggja sitt af mörkum til. Þar að auki fylgir fræðilegur kafli sem byggður er á röð fyrirlestra sem ég sótti í doktorsnáminu mínu. Sá kafli skýrir hið afstæðilega sjónarmið sem greinarnar sjálfar byggja á.
Language: English
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7204507821
Cites: 161
Cited by:
Related to: 10