Work

Altækir sjúkdómar og birtingamynd þeirra í munni – hluti 2

Year: 2024
Type: article
Abstract: Vefir í munni geta orðið fyrir breytingum eða skaða vegna sjúkdóma sem hafa aðallega áhrif á önnur líkamskerfi. Einkenni slíkra altækra sjúkdóma sem birtast í munni geta verið afar breytileg bæði hvað varðar tíðni og birtingarmynd. Einkenni altækra sjúkdóma sem birtast í munni geta verið fyrstu einkenni bráðra eða langvinnra sjúkdóma og geta hafist mörgum árum áður en altæk einkenni koma fram og sjúkdómur greinist.Einnig geta sjúklegar breytingar í munnslímhúð, kjálkum og aðliggjandi svæðum haft áhrif á almennt heilbrigði sjúklings.Vaxandi lífslíkur og framfarir í heilbrigðisþjónustu valda því að líklegt er að fjöldi einstaklinga með einkenni altækra sjúkdóma sem birtast í munni muni aukast jafnt og þétt. Mikilvægt er að bregðast hratt og vel við hugsanlegum einkennum altækra sjúkdóma sem birtast í munni til að auka lífsgæði sjúklinga.Einkenni í munni geta verið fyrstu merki um undirliggjandi altækan sjúkdóm og geta fylgt eða verið undanfari sjúkdómsgreiningar. Tannlæknar gegna því mikilvægu hlutverki við greiningu og tilvísun sjúklinga með hugsanlega altæka sjúkdóma.Ef kviðverkir, niðurgangur og einkenni frá meltingarvegi fylgja einkennum í munni ætti tannlæknir að vísa sjúklingi tafarlaust áfram til nánari læknisrannsóknar. Mikilvægt er að tannlæknir fylgi meðferð sjúklings eftir í samvinnu við lækni þar sem versnun einkenna í munni getur bent til aukinnar sjúkdómsvirkni. Lykilorð: Munnur, altækur, sjúkdómar, einkenni
Language: Icelandic
Field: Dentistry
Open Access status: bronze
OpenAlex ID: W4408230332
FWCI:
Cites: 46
Cited by:
Related to: 10