Year: 2026
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum áratugum hafa fjölflúorsetin alkýlefni (PFAS) komið fram sem útbreidd mengunarefni, sem hafa greinst jafnvel á afskekktum svæðum á borð við Norðurskautið og Suðurskautslandið, með víðtæk áhrif á heilsu manna og vistkerfa. Sérstakar áhyggjur hafa vaknað vegna útbreiðslu PFAS og mögulegra áhrifa þeirra á lykillífverur í fæðuvefjum, svo sem kísilþörunga, sem eru stór hópur svifþörunga og gegna lykilhlutverki í lífefnafræðilegum hringrásum með því að standa undir um 20% af frumframleiðslu jarðar. Markmið þessarar ritgerðar var að rannsaka áhrif PFAS á tvær vistfræðilega ólíkar tegundir sjávarkísilþörunga, uppsjávartegundina Thalassiosira pseudonana og botnlægu tegundina Cylindrotheca closterium, og meta áhrif þeirra á lífeðlisfræði þörunganna, genatjáningu þeirra og á sambýlisörverur þeirra. Báðar tegundirnar voru ræktaðar í viðurvist langkeðja PFAS efnasambanda yfir styrkhallanda í skammtímatilraunum, auk langvarandi snertingar við PFASblöndu í styrk áþekkum þeim sem mælist í sjó á Norðurslóðum. Mældir voru lífeðlisfræðilegir þættir tengdir vexti, ljóstillífun, oxunarálagi og frumuefnasamsetningu. Þessar niðurstöður voru síðan samþættar greiningum á genatjáningu, markvissri efnaskiptagreiningu innan frumna (endometabolome) og breytingum á bakteríusamfélögum tengdum kísilþörungunum. Skammtímatilraunirnar sýndu marktæka vaxtarhömlun hjá báðum tegundum við háa (100 mg/L) og miðlungs (1 mg/L) PFAS-styrki, þar sem blöndur höfðu sterkari áhrif en einstök efni. Viðbrögðin voru þó tegundasértæk. C. closterium reyndist næmari fyrir perflúoraðri karboxýlsýrum (PFCAs; C8-C12), en T. pseudonana varð fyrir meiri áhrifum af PFAS-efnum með kolefniskeðjur lengri en C11. PFAS-útsetning dró úr ljóstillífunarvirkni, blaðgrænumagni og próteininnihaldi, en jók á sama tíma streituvísa eins og prólín og heildarvirkni andoxunarkerfa. Við langvarandi útsetningu fyrir PFAS-blöndu (0,9 ng/L) náðu vaxtarhraðar sér aftur á strik eftir 14 daga og urðu sambærilegir við samanburðarhópa, sem bendir til mögulegra aðlögunar- eða uppbótarviðbragða. Á sameindastigi sýndi T. pseudonana víðtæk áhrif PFAS á marga grunnefnaskiptaferla, en svörun C. closterium var markvissari og einkenndist einkum af aukinni virkni ABC-flutningspróteina og breytingum í miðlægum kolefnaefnaskiptum. Breytingar í efnaskiptum og genatjáningu hjá T. pseudonana bentu til tilfærslu frá vaxtarhvetjandi ástandi með mikla köfnunarefnisþörf yfir í streituaðlagaða svipgerð sem lagði meiri áherslu á viðhald oxunar-jafnvægis, viðgerð frumuhimna og myndun verndandi afleiddra efnasambanda fremur en áframhaldandi vöxt. PFAS-útsetning leiddi einnig til endurskipulagningar bakteríusamfélaga tengdra kísilþörungunum á hýsilháðan hátt, þó án verulegra breytinga á alfa-fjölbreytni, sem bendir til breytinga á samfélagsgerð frekar en hruns samfélaganna.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Author: Arulananthan, Ashani
Language: English
Subfield: Environmental Chemistry
Field: Environmental Science
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7214137148
