Work

Umhverfis- og einstaklingsbundnir þættir í þunglyndiseinkennum á ÍslandiHlutverk árstíðar, umhverfistengdra skapbreytinga og dægursveifluhneigðar

Year: 2026
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessari ritgerð er sjónum beint, í þremur rannsóknum, að umhverfis- og eintaklingsbundnum þáttum í þunglyndiseinkennum á Íslandi -landi sem liggur norðarlega og mikill munur er á dagsbirtu og veðurfari eftir árstíðum. Í fyrstu rannsókninni var notaður skimunarlisti ásamt hálfstöðluðu geðgreiningarviðtali til að meta árstíðabundnar sveiflur í þunglyndiseinkennum og þunglyndisröskun í lagskiptu úrtaki Íslendinga. Vegið algengi árstíðabundins þunglyndis var mun hærra samkvæmt skimunarlista, eða 17,86%, heldur en samkvæmt geðgreiningarviðtali, eða 2,24%, sem er í samræmi við rannsóknir í löndum nær miðbaug og bendir til ofmats á áhrifum hnattlegu landa á þunglyndi, ef sjálfsmatsskimunarlistar eru eingöngu notaðir. Í annarri rannsókninni voru skoðuð tengsl skaps fólks við staðbundið hita- og birtustig og hvort þeir þættir tengdust alvarleika þunglyndiseinkenna. Niðurstöður sýndu að verra skap þegar kalt var í veðri og dagsbirta minni, tengdist alvarlegri einkennum og að tengsl hitastigs og þunglyndiseinkenna var háð (ó)þoli fólks fyrir kaldara hitastigi. Í þriðju rannsókninni var dægursveifluhneigð og neysla orkudrykkja skoðuð í tengslum við einkenni þunglyndis og svefnleysis með árstíðabundnum mælingum í eitt ár. Niðurstöður sýndu að kvöldhneigt fólk hafði meiri þunglyndiseinkenni á grunnlínu að sumri og að neysla orkudrykkja tengdist þunglynlyndiseinkennum þegar tók að hausta, sér í lagi hjá kvöldheigðu fólki. Samantekið, benda niðurstöður þessara þriggja rannsókna til að árstíðabundið þunglyndi, greint sem geðröskun í geðgreiningarviðtali, sé tiltölulega sjaldgæft en að sveiflur í þunglyndiseinkennum eftir árstíðum sé mun algengari þegar miðað er við sjálfsmat fólks. Niðurstöðurnar benda einnig til að áhrif umhverfisþátta á þunglyndiseinkenni séu háð einstaklingsbundnu mati og þoli fólks, frekar en þáttunum einum og sér og að tengsl orkudrykkja við þunglyndiseinkenni séu háð dægursveifluhneigð og árstíðum. Niðurstöður rannsóknaverkefnisins benda til að tengsl árstíðabundninna umhverfisþátta og þunglyndiseinkenna séu háð einstaklingsbundnum tilhneigingum. Loftslagsbreytingar móta umhverfi og aðstæður fólks. Aukinn skilningur á samspili umhverfis og einstaklingsbundinna þátta er því mikilvægur og getur nýst til að afmarka viðkvæma hópa og veita markvissari fræðslu og stuðning.
Language: English
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7225947421
Cites: 248
Cited by:
Related to: 10