Year: 2013
Type: article
Abstract: B örn með mótþróaþrjóskuröskun (Oppositional Defiant Disorder) og hegðunarröskun (Conduct Disorder) glíma við alvarlegan og fjölþættan vanda.Sérkenni hegðunarvanda barna með þessar raskanir eru allt frá því að vera tiltölulega væg einkenni mótþróa (t.d.reiðiköst) til þess að vera alvarleg andfélagsleg hegðun (t.d.þjófnaður og eyðilegging eigna) (Rapoport og Ismond, 1996).Skilningur á eðli þessara raskana, undanfara og þróun þeirra, skiptir miklu fyrir markvissa íhlutun og skilvirk meðferðarrúrræði.Fjöldi nýlegra rannsókna hefur beinst að þessu á undanförnum árum (sjá McMahon og Frick, 2007).Minna hefur farið fyrir rannsóknum á greiningartækjum til að meta mótþróaþrjósku-og hegðunarröskun.Þetta er þó ein af meginforsendum þess að vænta megi framfara á þessu sviði (McMahon og Frick, 2005).Þegar einkenni mótþróaþrjósku-og hegðunarröskunar í DSM-IV-TR greiningarkerfinu eru skoðuð með hliðsjón af þroska barna á leikskóla-og grunnskólaaldri kemur í ljós að mörg þeirra tengjast siðferðis-
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W826556607
