Year: 2008
Type: article
Abstract: Vefjagigt er algengt verkjaheilkenni sem er best þekkt hjá fullorðnum og er fjórum sinnum algengara hjá konum en körlum.Helstu einkenni eru útbreiddir stoðkerfisverkir, svefntruflanir, óeðlileg þreyta og skert færni til daglegra athafna.Á síðustu árum hafa menn áttað sig á að vefjagigt finnst einnig hjá börnum og ungmennum og eru einkennin fjölþætt og svipar til einkenna vefjagigtar fullorðinna.Samkvæmt rannsóknum er vefjagigt til staðar hjá 1,2-6,2% barna á grunnskólaaldri og líkt og hjá fullorðnum er heilkennið algengara hjá stúlkum en drengjum.Vefjagigt hefur umtalsverð áhrif á heilsu, daglega færni og lífsgæði barna og ungmenna.Greining vefjagigtar hjá börnum og ungmennum byggir á tveimur skilmerkjum: Útbreiddum stoðkerfisverkjum frá þremur líkamssvæðum í minnst þrjá mánuði og jákvæðum kvikupunktum á 5 af 18 stöðum.Orsakir vefjagigtar eru ekki þekktar en líklegt er talið að erfðir eigi þar einhvern þátt.Margir þættir eru taldir geta komið sjúkdómsferlinu af stað, meðal annars svefntruflanir, sálfélagslegir þættir, ofhreyfanleiki og aðrir undirliggjandi sjúkdómar.Rannsóknarniðurstöður sem liggja fyrir benda til að draga megi úr einkennum vefjagigtar með viðeigandi meðferð.Meðferð sem felst í fræðslu, þátttöku sjúklings og foreldra hans, bættu svefnmynstri með eða án lyfjagjafar, líkamsþjálfun og hugrænni atferlismeðferð hefur gefið góðan árangur. InngangurVefjagigt er vel þekkt verkjaheilkenni hjá fullorðnum, en á síðustu árum hafa menn áttað sig á að það finnst einnig hjá börnum og ungmennum.Þekkt er að margir fullorðnir vefjagigtarsjúklingar rekja upphaf einkenna sinna aftur til bernsku.Í rannsókn Yunus og félaga (1) töldu 28% vefjagigtarsjúklinga að einkenni sjúkdómsins hafi byrjað í barnæsku.Hér er gefin yfirsýn yfir hvað er vitað um vefjagigt hjá börnum og ungmennum og helstu meðferðarúrræði. Yunus og Masi voru fyrstir til að lýsa vefjagigtSjúkraþjálfun Styrkur ehf.
Author: Sigrún Baldursdóttir
Language: Danish
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W828262890
