Work

Lítil nýrnafrumukrabbamein og fjarmeinvörp

Year: 2012
Type: article
Abstract: InngangurNýrnafrumukrabbamein (NFK) er í kringum 3% ný greindra krabbameina og er nýgengi þess hér á landi með því hæsta sem þekkist. 1 Síðustu áratugi hefur greining lítilla (≤4 cm) NFK orðið algengari vegna framfara sem orðið hafa í myndgreiningu og aðgengi að rannsóknum hefur aukist. 2 Lítil hætta hefur verið talin á því að lítil NFK meinverpist og horfur þessara sjúklinga hafa almennt verið taldar góðar.Í nýlegum al þjóðlegum leiðbeiningum frá Evrópu og Bandaríkjunum er mælt með hlutabrottnámi í stað fulls brottnáms þegar um lítil NFK er að ræða.3,4 Er ástæðan fyrst og fremst sú að hlutabrottnám varðveitir betur nýrnastarfsemi sem getur bætt langtímahorfur þessara sjúklinga.5,6 Góðar horfur lítilla NFK eru einnig notaðar sem röksemd fyrir virku eftirliti (active surveilance) í stað skurðaðgerðar, til dæmis hjá eldri einstaklingum eða fjölveikum þar sem skurðaðgerð er talin of áhættusöm.7,8 Tíðni meinvarpa eykst með aukinni stærð NFK, og á það sérstaklega við um æxli sem eru yfir 7 cm að stærð.9 Fyrir minni æxli er sambandið flóknara, sérstaklega fyrir æxli sem eru undir fjórum cm.Þannig eru til rann sóknir sem hafa sýnt línulegt samband milli stærðar æxlis og tíðni meinvarpa 10,11 en aðrar rannsóknir hafa ekki getað sýnt fram á slíkt samband.12 Í nýlegri sænskri rannsókn, National Swedish Kidney Cancer Quality Register (NSKCR), sem náði til 2033 sjúklinga, var tíðni meinvarpa hjá sjúklingum með æxli undir 4 cm 7% og 32% fyrir æxli 67 cm að stærð.10 Í flestum erlendu rann sóknanna, að þeirri sænsku undanskilinni, var aðeins litið á sjúklinga sem gengust undir nýrnaskurðaðgerð.11131 Læknadeild Háskóla Íslands, 2 skurðsviði Landspítala, 3 rannsóknarstofa í meinafræði, Landspítala.inngangur: Horfur lítilla nýrnafrumukrabbameina eru almennt taldar góðar og mælt er með hlutabrottnámi ef æxli eru undir 4 cm.Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka tíðni fjarmeinvarpa frá litlum nýrnafrumukrabbameinum en þau hafa ekki verið rannsökuð áður hér á landi.Efniviður og aðferðir: Af 1102 sjúklingum sem greindust með nýrnafrumukrabbamein á tímabilinu 1971-2010 var litið sérstaklega á 257 æxli ≤4 cm og sjúklingar með meinvörp við greiningu bornir saman við sjúklinga án meinvarpa.Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og vefjagerð, TNM-stig og sjúkdómasértæk lifun var borin saman í hópunum.niðurstöður: Hlutfall lítilla nýrnafrumukrabbamein hækkaði úr 9% fyrsta áratuginn í 33% þann síðasta (p<0,001) á sama tíma og hlutfall tilviljanagreiningar jókst úr 14% í 39%.Alls greindust 25 af 257 sjúklingum (10%) með lítil nýrnafrumukrabbamein með fjarmeinvörp, oftast í lungum og beinum.Sjúklingar með meinvörp voru 1,9 árum eldri, æxlin 0,2 cm stærri og oftar staðsett í hægra nýra.Vefjagerð var sambærileg í báðum hópum en æxli greindust síður fyrir tilviljun hjá sjúklingum með meinvörp, blóðrauði þeirra var lægri og bæði Fuhrman-gráða og T-stig hærra.Fimm ára lifun sjúklinga með meinvörp var 7% borið saman við 94% hjá viðmiðunarhópi (p<0,001).Ályktun: Við greiningu eru 10% sjúklinga með lítil nýrnafrumukrabbamein með fjarmeinvörp.Þetta er óvenju hátt hlutfall en í flestum öðrum rannsóknum hefur aðeins verið litið á sjúklinga sem gengist hafa undir skurðaðgerð.Sjúklingar með meinvörp eru marktækt eldri, greinast oftar með einkenni sjúkdómsins, hafa stærri frumæxli og verri lifun.Lítil nýrna-
Language: Icelandic
Subfield: Urology
Field: Medicine
Open Access status: diamond
OpenAlex ID: W2277136147
FWCI:
Cites: 26
Cited by:
Related to: 10