Íslensk börn og unglingar með höfuðáverka: Hve margir þurfa sérhæfða fræðslu, endurhæfingu eða eftirfylgd og hvers konar íhlutun er við hæfi?
Year: 2009
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fjölda barna og unglinga, sem lýsa eftirstöðvum fjórum árum eftir höfuðáverka, og skoða eðli þessara kvartana, og meta þannig þörf fyrir sérhæfða íhlutun af mismunandi toga. Gögnum var safnað á framvirkan hátt um alla sjúklinga 0-19 ára, sem greindir voru með höfuðáverka (ICD-9 850-854) á Borgarspítalanum á einu ári, 1992-1993 (n=405). Fjórum árum síðar var spurningalisti um eftirstöðvar áverka sendur til sjúklinga. Alvarleikastig byggt á eðli kvartana var metið samkvæmt viðmiðum Glasgow Outcome Scale (GOS), barnaútgáfu. Alls lýstu 39 sjúklingar lýstu eftirstöðvum höfuðáverka fjórum árum síðar. Samkvæmt viðmiðum GOS lýstu 19 þeirra góðri útkomu (e. good outcome), 14 lýstu miðlungs hömlun (e. moderate disability), 2 lýstu alvarlegri hömlun (severe disability) og 4 höfðu látist vegna heilaskaða. Nýleg athugun bendir til þess að ekki hafi orðið fækkun á börnum og unglingum sem hljóta alvarlegri höfuðáverka (ICD-9 851- 854) á ári hverju.Niðurstöður benda til þess að tugir íslenskra barna og unglinga þarfnist sérhæfðrar íhlutunar og eftirfylgdar á ári hverju vegna afleiðinga höfuðáverka. Íhlutunin getur verið mjög breytileg, allt frá fræðslu fyrir foreldra til endurhæfingar og eftirfylgdar til lengri tíma. Íhlutunin þarf að taka mið af vanda hvers og eins.
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Neurology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2287876216
