Work

Efnasamsetning sölva – Árstíðarsveiflur

Year: 2019
Type: article
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna magn næringarefna, steinefna og snefilefna í sölvum eftir árstíma til að meta hvenær best sé að uppskera þau m.t.t. næringarsjónarmiða. Tekin voru sýni á tveimur stöðum, Tjaldanesi við Saurbæ í Dalasýslu og Herdísarvík við Selvog á Reykjanesi á tímabilinu frá október 2011 til apríl 2013. Árstíðarsveiflur greindust í innihaldi næringarefna í sölvum bæði í Herdísarvík og Tjaldanesi og fylgdu þær svo til sama ferli. Snemma vors náði magn trefja, próteina, fitu, ösku og vatns hámarki. Mælingar bentu einnig til árstíðarsveiflna í sumum þeirra steinefna og snefilefna sem mæld voru; kalíum, fosfór, joð, selen, kadmín og blý. Þungmálmar voru innan viðmiðunarmarka að undanskildu kadmín á veturna.
Institution: Matís (Iceland)
Language: Icelandic
Subfield: Food Science
Open Access status: green
OpenAlex ID: W4288254136
FWCI:
Cites:
Cited by:
Related to: 10