Work

Illskan og guð

Year: 2023
Type: article
Abstract: Arnfríður Guðmundsdóttir Illskan og GuðTilvist illskunnar er óumdeilanleg.Við sjáum hana allt í kringum okkur.Illskan er stór þáttur í sögu mannkynsins og spilar þar oftar en ekki stórt hlutverk.Þannig er það líka í ritum Biblíunnar.Allt frá þriðja kafla Fyrstu Mósebókar er illskan til staðar í hinum margvíslegu birtingarmyndum og kallar stöðugt á viðbrögð Guðs.Í sögu Ísraelsþjóðarinnar, sem varðveitt er í Gamla testamentinu, er illskan aldrei langt undan.Oftar en ekki á hún hlut að máli þegar einstaklingar eða þjóðin öll brýtur gegn vilja Guðs.Afleiðingarnar eru misalvarlegar, allt frá því að vera vísað burt úr Paradís, til Nóaflóðsins og útlegðarinnar í Babýlon og svo áfram.Spurningar tengdar illskunni og þjáningunni sem af henni hlýst eru áberandi innan gyðing-kristinnar trúarhefðar.Frammi fyrir illskunni og afleiðingum hennar er spurt um eðli og hlutverk hennar.Hvaðan kemur illskan?Hefur hún einhvern tilgang?Þegar trúaður einstaklingur á hlut að máli er óhjákvæmilegt að spyrja um tengsl illskunnar og Guðs.Þekktasta dæmið um einstakling sem glímir við illskuna og áhrif hennar í Gamla testamentinu er Job.Þegar þjáningin er komin á það stig að vera óbærileg hefur Job upp raust sína og tjáir örvæntingu sína á afgerandi hátt, meðal annars með því að iðrast þess að hafa fæðst (Jb 3.11-13).Hann telur sig hafa ástæðu til að kvarta yfir ástandi sínu (Jb 7.11).Það fer illa í vini hans sem eru mættir til að hugga hann.Þeir telja þjáningar Jobs eiga sér eðlilegar orsakir í fortíð hans.Að þeirra mati er þjáning hans hirting Guðs og því ætti hann að vera þakklátur, frekar en að örvænta (Jb 5.17-18).Þetta kann Job ekki að meta.Hann telur vini sína ranglega halda því fram að Guð sé að baki þjáningu hans og að hans mati eru þeir "hvimleiðir huggarar" og ekkert annað (Jb 16.2).Þó að höfundur Jobsbókar virðist hafna því að líta beri á illsku og þjáningu sem refsingu (eða gjöf) frá Guði, þá er fjarri því að í bókinni sé að finna endanleg svör um upphaf og ástæður.Í gegnum tíðina hafa margar kenningar verið settar
Source: Ritið
Language: Icelandic
Subfield: Philosophy
Open Access status: diamond
OpenAlex ID: W4380989176
FWCI:
Cites:
Cited by:
Related to: 10