Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Skert innsæi er algengt hjá Alzheimerssjúklingum og getur valdið því að sjúklingar gera sér illa grein fyrir sjúkdómi sínum og ofmeti eigin getu. Í rannsóknum á Alzheimers-sjúkdómnum hefur því tíðkast að afla upplýsinga frá aðstandendum og fagfólki en upplýsingar frá sjúklingunum sjálfum að mestu skort. Rannsóknir á lífsgæðum, þunglyndi, verkjum og getu til athafna meðal Alzheimerssjúklinga hafa leitt í ljós töluvert ósamræmi í svörum sjúklinga og aðstandenda. Til að hægt sé að bæta þjónustu og meðferð þarf að öðlast skilning á áhrifum þess að greinast með sjúkdóminn á líðan og lífsgæði fólks. Þegar tekist er á við veikindi og aðra erfiðleika getur lífsafstaða og bjargráðastíll skipt miklu máli. Markmið rannsóknarinnar er að kanna á heildstæðan hátt upplifun fólks sem nýlega hefur fengið greiningu á Alzheimerssjúkdómi og meta þær afleiðingar sem sjúkdómurinn hefur haft á líðan og lífsgæði þeirra. Rannsóknin er megindleg og byggist á mati þátttakenda á eigin líðan og lífsgæðum. Aðstandendur mátu einnig sömu þætti fyrir sjúklinga til að skoða mætti samræmi í svörum þeirra. Þátttakendur voru 34 sjúklingar sem nýlega höfðu fengið greiningu á Alzheimers-sjúkdómi og 34 aðstandendur þeirra. \nNiðurstöður: Sjúklingar mátu líðan sína betri, sinnuleysi minna og lífsgæði sín meiri en aðstandendur þeirra gerðu. Þegar stjórnað var fyrir innsæi hvarf munurinn og því má ætla að innsæisleysi hafi átt þátt í því að sjúklingarnir meti fyrrnefnda þætti með öðrum hætti en aðstandendur. Engin tengsl voru á milli innsæis- og sinnuleysis sjúklinga og líðan aðstandenda. Bjartsýnir sjúklingar og aðstandendur aðhylltust lausnarmiðaðan bjargráðastíl og voru ólíklegir til að finna fyrir þunglyndi og kvíða. Líklegt má telja að lausnarmiðuð bjargráð miðli tengslum lífsafstöðu og líðan aðstandenda og skýri að hluta til upplifun á einkennum kvíða og þunglyndis.
Source: Skemman
Author: Arndís Valgarðsdóttir 1957
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980126263
