Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í byrjun árs 2020 hóf SARS-CoV-2 vírusinn að berast frá Kína til annarra landa og var von bráðar búinn að smita þúsundir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir neyðarástandi og heilbrigðiskerfi heimsins þurftu að bregðast hratt við til þess að vernda heilsu landsmanna sinna og takmarka útbreiðslu smita. Alþjóðlega var lögð áhersla á að forgangsraða bólusetningum barna innan heilsugæsluþjónustunnar og bæta upp fyrir þær sem féllu niður eins fljótt og hægt var. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort hefðu orðið truflanir á bólusetningum barna fyrstu mánuði faraldursins á Íslandi og hvað hefði verið gert til þess að draga úr þessum truflunum innan heilsugæslunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á megindlegum gögnum frá Embætti landlæknis um bólusetningar barna 2018-2020, og eigindlegum gögnum í formi viðtala við hjúkrunarfræðinga starfandi innan heilbrigðisstofnana á Íslandi. Niðurstöðurnar sýna að valkvæðar truflanir voru á bólusetningum í mars og apríl árið 2020 þegar starfsemi heilsugæslu var töluvert skert vegna smithættu og sýnatöku. Þetta olli þó smávægilegum truflunum á bólusetningu barna yngri en tveggja ára. Bólusetningum fjögurra ára barna var þó frestað og þátttaka í þeim skertist heilt yfir árið 2020, þrátt fyrir að reynt hefði verið að bæta upp fyrir þær bólusetningar sem féllu niður. Eins var töluverð skerðing á bólusetningum 12 ára skólabarna gegn papilloma veirunni (HPV) í mars og apríl 2020 en bætt var upp fyrir það strax í maí. Starfsemi heilsugæsla landsins breyttist mikið vegna faraldursins, venjubundin starfsemi var skert og sýnataka og seinna COVID-19 bólusetningar tóku mikinn tíma og starfskraft. Hjúkrunarfræðingar voru þar fremstir í flokki og olli þetta aukalegu álagi í vinnu þeirra. Skólahjúkrunarfræðingar voru sérstaklega notaðir í önnur störf þegar aðgengi að skólum landsins var skert vegna veirunnar og þyngsti róðurinn var innan heilsugæslunnar. Íslenska heilbrigðiskerfið sýndi þrautseigju og viðbrögð yfirvalda, sóttvarnalæknis og landlæknis voru reyndust viðeigandi á erfiðum tímum. Mikilvægt er að reynslan af baráttunni við COVID-19 faraldurinn nýtist í vinnu við endurskoðun viðbragðsáætlana fyrir komandi hnattrænar heilbrigðisáskoranir.
Source: Skemman
Author: Þuríður Skarphéðinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987027554
