Work

Seasonal affective disorder and emotional memory : is there a negativity bias in emotional individuals at risk of seasonal affective disorder?

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Skammdegisþunglyndi (Seasonal Affective Disorder) er er skilgreint sem endurtekið þunglyndi með árstíðabundnu mynstri. Einstaklingar sem búa á norðuhveli jarðar, eins og Íslandi, hafa verið líklegri til að þróa með sér skammdegisþunglyndi en fólk sem býr í suðlægari heimshlutum. Fyrri rannsóknir leiddu í ljós að fólk sem glímir við þunglyndi veitir neikvæðum upplýsingum frekar athygli heldur en jákvæðum eða hlutlausum. Slík neikvæð skekkja er einnig hægt að gera ráð fyrir í skammdegisþunglyndi þó það hafi ekki enn verið staðfest endurtekið. Þannig í þessu verkefni var kannað hvort slík neikvæð skekkja eigi sér einnig stað hjá íslenskum hópi fólks sem er í áhættuhópi fyrir skammdegisþunglyndi í samanburði við samanburðarhóp. \nAðferð: Gögnum var safnað frá 107 þátttakendum sem skráðir voru í langtímarannsókn á Íslandi. Þátttakendur fylltu út spurningarlista sem skoðar árstíðarbundið mynstur til að flokka þá í háa (N = 54) og lága (N = 53) árstíðarbundna hópa þar sem kyn og aldur var samræmt. Þátttakendur framkvæmdu hugræn verkefni á meðan fylgst var með heilavirkni þeirra, þar á meðal að flokka myndir eftir árstíðum, endurheimta myndir með frjálsri upprifjun og greina á milli gamalla og nýrra mynda í minnisverkefni. Í þessari rannsókn voru gögn frá frjálslega upprifjuðum neikvæðum, jákvæðum og hlutlausum myndum greind. \nNiðurstöður: Spearman fylgnistuðull sýndi engin marktæk tengsl á milli árstíabunda stiga og myndahópa (rs (105) = -.01, p = .915). Kruskal-Wallis próf sýndu engan tölfræðilega marktækan mun milli árstíðarbundinna hópa og myndaflokkar. Engin marktæk áhrif voru fyrir neivkæðar myndir (X2(2, N = 107) = .74, p = .391), hlutlausar myndir (X2 (2, N = 107) = .11, p = .739), og jákvæðar myndir (X2 (2, N = 107) = .02, p = .88). \nÁlyktun: Niðurstöður þessarar rannsóknar leiddu í ljós að það að skora hátt á árstíðarsveiflu hefur ekki áhrif á minni og leiðir ekki til sterkari neikvæðrar skekkju varðandi tilfinningalegar myndir sem rifjaðar eru upp frjálslega. Þetta er andstætt fyrri verkum þar sem stöðugt var sýnt fram á hlutdrægni í tilfinningalegri neikvæðni hjá einstaklingum sem greindir voru með þunglyndi. Þó að rannsóknin sem fyrir hendi er veiti dýrmæta innsýn í samspil árstíðarsveifla, minnis og tilfinningalegrar úrvinnslu, ættu framtíðar verkefni að endurtaka greiningarnar fyrir hverja árstíð fyrir sig í hópi fólks sem upplyllir greiningarviðmiðin fyrir skammdegisþunglyndi.
Source: Skemman
Author: Berglind Sif Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987056825
Cites: 41
Cited by:
Related to: 10