Work

Tengsl ófrjósemi og tilfinninga : áhrif ófrjósemi á einstaklinga

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Ófrjósemi hrjáir um 5-15% einstaklinga á barneignaraldri og er að finna alls staðar í heiminum. Mismunandi er eftir menningarheimum hversu aðgengileg læknisaðstoð er við ófrjósemi. Horft er á ófrjósemi mismunandi eftir menningarheimum, sums staðar er mikilvægi þess að eignast barn töluvert meiri en annars staðar. Má þá nefna t.d. Ghana, þar sjá börn um foreldra sína í ellinni og er því mikilvægt að geta átt börn til að tryggja framtíð sína. En í vestrænum löndum er neyðin ekki jafn mikil en þráin eflaust til staðar samt sem áður. \nMarkmið þessarar ritgerðar var að skoða vísindalegar rannsóknir um tengsl ófrjósemi og tilfinninga. Einnig að skoða hvaða þættir hafa áhrif á ófrjósemi og hvaða meðferð hefur reynst gagnleg við tilfinningalegum þáttum tengdum ófrjósemi. Við heimildaleit ritgerðarinnar var notast við íslensk og erlend gagnasöfn, meðal þeirra voru PsycArticles, EBSCOhost og Web of Science. Þau leitarorð sem voru notuð voru m.a. infertility, psychological impact AND infertility og gender differences AND infertility. \nNiðurstöður heimildaleitar sýndi fram á að ófrjósemi hefur gríðarleg áhrif á einstaklinga sem við hana glíma. Kvíði, þunglyndi og streita eru t.d. talin aukast hjá þeim sem glíma við ófrjósemi. Sjálfálit er talið minnka hjá bæði konum og körlum. Konur upplifa meiri sorg en karlar, meðan karlar verða fyrir vonbrigðum að geta ekki gefið konu sinni barn. Þráin er oft mikil að eignast barn en karlar eiga auðveldara með að sætta sig við barnlaust líf en konur. Einstaklingar á barneignaraldri finna fyrir auknum þrýstingi frá sínum nánustu og samfélaginu til að eignast barn og getur það haft veruleg áhrif á tilfinningalegu hlið þess einstaklings sem glímir við ófrjósemi. Hugræn atferlismeðferð og núvitundarmeðferð hafa reynst gagnlegar við tilfinningalegum erfiðleikum tengdum ófrjósemi. Kostir og gallar rannsóknanna sem teknar eru fyrir í ritgerðinni eru ræddir. \n \n \nLykilhugtök: Ófrjósemi, Síðkomin ófrjósemi, Tilfinningar og ófrjósemi, Streita, Þunglyndi, Hugræn atferlismeðferð (HAM).
Source: Skemman
Authors: Elín Heiða Ólafsdóttir 1985, Íris Stella Sverrisdóttir 1986
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987573263
Cites: 84
Cited by:
Related to: 10