Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn á stjórnspekihugmyndum í Paradiso eftir Dante Alighieri. Fjallað er um hvernig borgarlíf og uppruni í borgum hefur áhrif á sjálfsmynd persóna verksins, og rætt um birtingarmyndir þeirra þriggja borgar sem hafa stærstu hlutverki að gegna í verkinu: Flórens, Rómar og Jerúsalems. Rætt er um þær dyggðir og syndir sem skipta mestu máli fyrir stjórnspekina að mati Dantes, ásamt þeim markmiðum sem hann boðar að séu æskileg við stjórnun ríkja. Loks er fjallað um valdajafnvægið á milli keisara og páfa, eitt helsta stjórnspekivandamál 13. aldarinnar, eins og það birtist í verkinu.
Source: Skemman
Author: Hjalti Snær Ægisson 1981-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: History
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987690899
