Work

Velferðartækni í þjónustu við aldraða: Áskoranir og tækifæri

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Með aukinni þekkingu og framförum hefur mannkyninu tekist að bæta árum við lífið og fer öldruðum verulega fjölgandi í heiminum í dag. Miklar breytingar munu verða á aldurssamsetningu þjóðarinnar á næstu árum og gert er ráð fyrir að skortur verði á fagfólki til að sinna þessum stækkandi hópi notenda. Því er mikilvægt að vekja athygli á málefnum aldraðra og leita lausna sem auka lífsgæði og sjálfræði einstaklinga og koma í veg fyrir eða seinka þörf á þjónustu. Markmið ritgerðarinnar er að auka þekkingu á velferðartækni og varpa ljósi á hvernig hún getur nýst í þjónustu við aldraða og í velferðarkerfinu almennt. Leitast verður við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur velferðartækni nýst í þjónustu við aldraða? Helstu niðurstöður ritgerðarinnar sýna að velferðartækni er mikilvæg lausn til þess að mæta þessum framtíðar áskorunum. Velferðartækni eru allar þær tæknilegu lausnir sem fólk getur nýtt sér til þess að stuðla að sjálfræði, félagslegri þátttöku og lífsgæðum á eigin forsendum. Velferðartækni nýtist ekki aðeins notendum þjónustunnar, heldur getur hún einnig nýst aðstandendum og fagfólki. Velferðartækni er fyrirhuguð sem ný og betri lausn til þess að auka gæði velferðarþjónustunnar, bæta starfsaðstæður og skapa jákvæð hagræn áhrif fyrir samfélagið.
Source: Skemman
Author: Anna Lind Særúnardóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987872057
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10