Work

Áhrif mataræðis á þróun kransæðasjúkdóma : kerfisbundin heimildasamantekt

Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Rannsóknin er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Hjartasjúkdómar eru önnur algengasta dánarorsök Íslendinga í dag og er kransæðastífla þar af lang algengasta dánarorsökin. Mataræði er einn af áhættuþáttum kransæðasjúkdóms og með breyttu mataræði er hægt að hafa áhrif á þróun sjúkdómsins. Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga að beita nýjustu rannsóknaraðferðum í meðhöndlun sjúkdóma og miðla þeirri þekkingu til einstaklinga með kransæðasjúkdóma til að auka þeirra lífsgæði. \nTilgangur verkefnisins er að skoða nýjustu rannsóknir og ráðleggingar samkvæmt klínískum leiðbeiningum varðandi mataræði og hvernig það getur skipt máli fyrir einstaklinga sem greinst hafa með kransæðasjúkdóma. Aðferðin sem notuð var við rannsóknina var kerfisbundin leit af efni frá tímabilinu 2011-2016 í gagnasöfnunum PubMed og CINAHL. Niðurstöðurnar sem fengust úr leitinni voru níu rannsóknargreinar sem uppfylltu leitarskilyrði. Þessar níu rannsóknir gefa vísbendingar um að ákveðið mataræði hafi jákvæð áhrif á þróun kransæðasjúkdóma. Neysla á feitum fiski, möndlum, kjöti, hvítlauki, Heracleum ávexti, trönuberjum, kakóflavoníðum og eggjum gefa vísbendingu um jákvæð áhrif á kransæðar hjá kransæðasjúklingum og voru í samræmi við klínískar leiðbeiningar evrópsku hjartasamtakanna að flestu leyti. Höfundar álykta að hægt sé að nota niðurstöður rannsóknarinnar til aukinnar þekkingar fyrir hjúkrunarfræðinga á mataræði í þágu einstaklinga með kransæðasjúkdóma. \nLykilhugtök: Mataræði, kransæðasjúkdómur, hjúkrunarfræði.
Source: Skemman
Authors: Eyrún María Elísdóttir 1975, Guðlaug Hrönn Gunnarsdóttir 1967, Ragnheiður Hjartardóttir 1978
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989106974
Cites: 31
Cited by:
Related to: 10