Work

Áhrif líkamlegs atgervis á andlega líðan

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að skoða tengsl líkamlegs atgervis og andlegrar líðanar, þar sem líkamlegt atgervi er skilgreint sem hreyfing, þrek, gripstyrkur, lóðrétt hopp og líkamsfita, og andleg líðan er skilgreind sem líkamsmynd, sjálfsálit og þunglyndi. Rannsóknir hafa bent til þess að dagleg hreyfing, gott þrek og lítil líkamsfita hafi jákvæð áhrif á andlega líðan. Gripstyrkur og lóðrétt hopp í tengslum við andlega líðan hafa hins vegar lítið verið skoðuð. \nVorið 2015 fór fram rannsókn þar sem skoðaðir voru nemendur í 10. bekk úr sex grunnskólum af höfuðborgarsvæðinu. Alls tók 301 nemandi þátt, þar af 122 drengir og 179 stúlkur. Hreyfing var mæld með hreyfimælum og þrek með hámarks-afkastagetuprófi á hjóli. Gripstyrkur, lóðrétt hopp og líkamsfita voru einnig mæld með hlutlægum mælingum. Líkamsmynd, sjálfsálit og þunglyndi var metið út frá spurningalista sem svarað var á rafrænu formi, þar sem spurningarnar koma frá stöðluðum spurningalistum. Til að skoða áhrif líkamlegs atgervis á andlega líðan var framkvæmd fjölbreytu-aðhvarfsgreining þar sem leiðrétt var fyrir kyni. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu að líkamlegt atgervi hafði marktæk tengsl við andlega líðan. Ólíkt fyrri rannsóknum hafði hreyfing engin tengsl við andlega líðan. Einnig fundust neikvæð tengsl á milli líkamsfitu og líkamsmyndar, β = –0,464, p < 0,01, neikvæð tengsl á milli líkamsfitu og sjálfsálits, β = –0,239, p < 0,01 og neikvæð tengsl á milli þreks og þunglyndis, β = –0,354, p < 0,01. Þessar niðurstöður gefa til kynna að ungmenni með litla líkamsfitu og gott þrek séu líklegri til að búa við góða andlega líðan.
Source: Skemman
Author: Bjarki Gíslason
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989174436
Cites: 115
Cited by: 1
Related to: 10