Work

Kolefnishlutlausar byggingar : Yfirgripsmikil samantekt yfir aðferðir til að ná kolefnishlutleysi

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Loftslagsbreytingar eru veruleg ógn við samfélagið og tafarlausar aðgerðir eru nauðsynlegar til að draga úr áhrifum þeirra. Byggingariðnaðurinn leikur lykilhlutverk í því að draga úr kolefnisfótspori byggða umhverfisins, og stuðla að markmiði Parísarsamkomulagsins um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5°C. Kolefnishlutlausar byggingar eru mikilvægar til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda frá byggða umhverfinu og takast á við loftslagsbreytingar. Skilgreining kolefnishlutlausra bygginga ætti að byggja á alhliða nálgun, sem tekur tillit til allra stiga lífsferils byggingar. Þessi ritgerð notar tvær rannsóknaraðferðir við leit í ritrýndum greinum: snjóboltaaðferð og gagnagrunnsleit til að greina helstu viðfangsefni sem eru nauðsynleg til að ná fram kolefnishlutlausri byggingu. Að auki er safnað saman vegvísum frá aðildarfélögum World Green Building Council (WGBC), með áherslu á Green Building Councils (GBCs) sem beita sér fyrir kolefnishlutlausu byggðu umhverfi í sínu landi. Ritgerðin leggur áherslu á samvinnu milli ólíkra hagsmunaaðila, svo sem ríkisstjórna, fræðimanna, atvinnulífs og almennings, til að takast á við hindranir og áskoranir við að innleiða kolefnishlutlausar byggingar. Með því að kynna sér og skilja mismunandi áherslur og sjónarmið ásamt góðum starfsvenjum sem koma fram í ritrýndum greinum og vegvísum þjóða, geta stefnumótendur og aðrir hagsmunaaðilar unnið saman að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera byggða umhverfið sjálfbærara. Áætlað er að kolefnishlutlausar byggingar muni hafa umtalsverðan umhverfislegan, efnahagslegan og félagslegan ávinning, sem muni stuðla að alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum og aukinni sjálfbærni byggða umhverfisins.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992064170
Cites: 151
Cited by:
Related to: 10