Work

Á öxlum risa: Þróun, uppsöfnun og aðlögunargildi menningar

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Menning er einkennandi fyrir mannlegt atferli og er jafnframt eitt helsta verkfærið sem maðurinn nýtir sér til að komast af við fjölbreyttar umhverfisaðstæður. Í þessari ritgerð er skoðað hvernig menning breytist í tíma og rúmi eftir ferli sem er í grunninn sambærilegt við líffræðilega þróun þó svo að mikilvægar undantekningar séu til staðar. Maðurinn er gæddur líffræðilegum eiginleikum sem gera honum kleift að safna upp, muna og miðla yfirgripsmiklu safni menningarlegrar þekkingar milli kynslóða. Þetta þekkingarsafn hleður á sig breytingum við endurtekin kynslóðarskipti til þess að mynda aðlögunarhæfa heild. Fyrir þær sakir að menning hefur þróast með þessum hætti hefur manninum tekist að finna háþróaðar menningarlegar lausnir við ýmiskonar áskorunum hvort sem er við Norðurheimsskautið, í frumskógum hitabeltisins eða í eyðimörkum Ástralíu.
Source: Skemman
Author: Guðlaugur Daðason 1991
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6995516517
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10