Work

Sjálfbær og samfélagslega ábyrgur rekstur fyrirtækja: Verkfæri, viðmið og áherslur við innleiðingu

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum hefur orðið mikil vitundarvakning um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Fjölmörg fyrirtæki setja sjálfbærni í fyrirrúm og koma samfélagsábyrgð í stefnu sína. Þannig sýna fyrirtæki að þau axli ábyrgð gagnvart umhverfinu og hugi að framtíðinni fyrir komandi kynslóðir. Neytendur leita einnig í auknum mæli til fyrirtækja sem sýna mikla ábyrgð og bjóða sem dæmi upp á umhverfisvænar vörur eða þjónustu. \nRannsóknarspurning ritgerðarinnar er eftirfarandi: Hvaða leiðir geta fyrirtæki farið þegar huga skal að því að innleiða sjálfbærni og samfélagsábyrgð og hvaða þætti er mikilvægt að leggja áherslu á? Notast er við gagnasöfnun heimilda til þess að leita svara við spurningunni og ritrýndar greinar, bækur og vefsíður notaðar við úrvinnslu. Fjallað er um mismunandi staðla, bæði alþjóðlega og íslenska, sem fyrirtæki geta tileinkað sér sem leiðarvísi að sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Festa – miðstöð um samfélagslega ábyrgð er með leiðarvísi á heimasíðu sinni sem var hafður að leiðarljósi við skrifin. \nNiðurstöður ritgerðar leiða í ljós að fyrirtæki geta stuðst við fjölmörg verkfæri við innleiðingu á sjálfbærni og samfélagsábyrgð en í ritgerðinni verður fjallað um nokkur þeirra. Helstu áherslur eru dregnar saman sem huga þarf að við innleiðslu, ásamt því að fjallað verður um áskorunum forystu. Helstu áskoranir forystu eru þátttaka hagaðila, að skapa menningu, heildstæð hugsun, lærdómur innan skipulagsheildar og mikilvægi mælinga og miðlun upplýsinga.
Source: Skemman
Author: Lovísa Mjöll Jónsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996509043
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10