Work

Heilsuefling fullorðinna með ADHD. Kerfisbundið yfirlit

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Athyglisbrestur og ofvirkni er taugaþroskaröskun sem hefur víðtæk áhrif á líf bæði fullorðinna og barna sem getur falið í sér skerðingu á lífsgæðum og heilsu. Þrátt fyrir að einstaklingar fái viðeigandi meðferð, eins og lyfjameðferð, er þessi hópur samt sem áður útsettur fyrir neikvæð einkenni í daglegu lífi. Það er því mögulegt að bæta heilsu þessa hóps enn frekar með heilsueflandi úrræðum. \nMarkmið: Að auka skilning og þekkingu hjá hjúkrunarfræðingum um þær víðtæku afleiðingar sem athyglisbrestur og ofvirkni hjá fullorðnum hefur á lífsgæði þeirra og heilsu. Jafnframt, að benda á gagnleg heilsueflandi úrræði, sem beita má til að bæta heilsu skjólstæðinga, svo hjúkrunarfræðingar geti veitt þessum hópi viðeigandi stuðning og úrræði. \nAðferð: Kerfisbundin leit var framkvæmd í gagnasafninu Pubmed, og takmarkaðist leit gagna við tímabilið 2010-2020. Leit var framkvæmd með tilliti til inntöku- og útilokunarskilyrða og var ferli gagnasöfnunar fært inn í PRISMA flæðiriti. \nNiðurstöður: Við leit fundust alls tólf rannsóknir sem svara spurningunum varðandi almenna heilsu og lífsgæði fullorðinna með athyglisbrest og ofvirkni, ásamt þeim úrræðum sem beita má til að bæta heilsu þessa hóps. Fullorðnir með athyglisbrest og ofvirkni glíma við margvísleg neikvæð einkenni í daglegu lífi sem hafa áhrif meðal annars á þeirra félagslíf, sambönd, heimilislíf, nám og starf. Þessi hópur upplifir mismunun og efasemdir um réttmæti röskunarinnar. Þá er tíðni fylgiraskana einnig há. Fullorðnir með athyglisbrest og ofvirkni eru líklegri til að fara oftar í megrun en ná síður varanlegum árangri samanborið við einstaklinga sem ekki glíma við athyglisbrest og ofvirkni. Hreyfing eykur vellíðan og gefur aukna orku en ekki hefur verið sýnt fram á að hún hafi bein áhrif á einkenni athyglisbrests eða ofvirkni. Neysla bætiefna með vítamínum, amínósýrum, andoxunarefnum og steinefnum getur minnkað hamlandi einkenni athyglisbrests, hvatvísi og ofvirkni og þar með aukið almenna vellíðan. Einnig er hugræn atferlismeðferð nytsamlegt úrræði til að auka sálfélagslega vellíðan og er árangur slíkrar meðferðar sjáanlegur til lengri tíma. \nÁlyktun: Samkvæmt rannsóknum geta fullorðnir með athyglisbrest og ofvirkni glímt við margvíslegar afleiðingar vegna röskunarinnar. Notkun heilsueflandi úrræða til að draga úr hamlandi einkennum athyglisbrests og ofvirkni hefur lítið verið rannsökuð. Þær rannsóknir sem hafa skoðað heilsueflandi úrræði lofa hins vegar góðu hvað varðar jákvæð áhrif og gefa þar af leiðandi tilefni til áframhaldandi rannsókna. \n \nLykilorð: Athyglisbrestur og ofvirkni, fullorðinn, lífsgæði, heilsa, heilsuefling, svefn, mataræði, hreyfing og hugræn atferlismeðferð.
Source: Skemman
Author: Jenný Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000840995
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10