Work

Áhrif holdafars og líkamlegs atgervis á getuskiptingu hjá 12-13 ára stúlkum í knattspyrnu

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í íslenskri knattspyrnu er getuskipting algeng í yngri flokkum og þjálfarar velja hæfileikaríka leikmenn saman í hópa fyrir æfingar og leiki. Markmið rannsóknarinnar er að athuga tengsl holdafars, líkamlegs atgervis og fæðingardags hjá 12 – 13 ára stúlkum við getuskiptingu þjálfara. \nFyrri rannsóknir á drengjum hafa sýnt fram á að holdafar, líkamlegt atgervi og fæðingardagur hafi áhrif á getuskiptingu þjálfara en mikill skortur er á rannsóknum á stúlkum. Þátttakendur (n=65) voru flokkaðir í fjóra getuskipta styrkleikaflokka frá 1 (hæsta getustig) – 4 (minnsta getustig) ásamt því var holdafar (hæð og þyngd) og líkamlegt atgervi mælt með ýmsum prófum (hraði, stefnubreytingar, stökkkraftur, loftháð þol og skotkraftur). \nNiðurstöður úr einhliða dreifigreiningu sýndu engan marktækan mun á holdafari og getuskiptum styrkleikaflokkum. Styrkleikaflokkur 1 mældist með marktækt (p  0,01) betri árangur í hraða (10 metra og 30 metra), skotkrafti og í Yo-Yo IE2 loftháðu hlaupaprófi en aðrir hópar. Styrkleikaflokkur 1 var með betri árangur en styrkleikaflokkur 4 í öllum mælingum á líkamlegu atgervi. Samkvæmt línulegri aðhvarfsgreingu er hægt að skýra tæp 73% (R2 0,727 (F(6,36) = 15,97, p=0.00) af liðsvalinu með mælingum á líkamlegu atgervi. Ekki fannst marktækur munur á fæðingardegi þátttakenda út frá getuskiptingu. \nLíkamlegt atgervi þátttakenda fór versnandi frá styrkleikaflokki 1 niður í styrkleikaflokk 4. Betra líkamlegt atgervi eykur möguleika leikmanns mikið á því að verða valinn í lið af hærri styrkleika. Að sama skapi er leikmaður sem mælist með lélegt líkamlegt atgervi búinn að takmarka framtíðarmöguleika sína í knattspyrnu. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar setur höfundur fram þá hugmynd að getuskipting sé mögulegur áhrifavaldur á þann mikla mun sem er á líkamlegu atgervi milli styrkleikaflokka.
Source: Skemman
Author: Sölvi Guðmundsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007990963
Cites: 92
Cited by:
Related to: 10