Work

Núvitundarmiðuð feminísk-meðferð : kynning á meðferð fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Ofbeldi í nánum samböndum er alvarlegt heilsufarsvandamál sem rekja má til kynjamisréttis, þar sem karlmenn eru í flestum tilfellum gerendur. Ofbeldi getur leitt til áfallastreituröskunar, þunglyndis, kvíða og langvarandi líkamlegra verkja. Tilgangur þessarar ritgerðar er að fjalla um nýtt núvitundarmiðað meðferðarform þar sem sérstakt tillit er tekið til þarfa þolenda heimilisofbeldis og hversu vel það gæti hentað íslenskum kvenkyns þolendum. Meðferðarformið kallast Núvitundarmiðuð feminísk meðferð (e. Mindfulness based feminist therapy) og byggist á vísindalegum grunni núvitundar, feminískri þekkingarfræði og hugrænni þjálfun í samkennd. Í ritgerðinni er farið yfir eiginleika þeirra meðferðanálgana sem Núvitundarmiðuð feminísk meðferð er samsett úr, bornir eru saman kostir þeirra og gallar og sýnt fram á hvernig þær geta bætt hvor aðra upp í heildstæðri meðferð fyrir þolendur heimilisofbeldis. Niðurstöðurnar gefa til kynna að þjálfun í núvitund og samkennd hjálpi einstaklingum að byggja upp heilbrigða sjálfsmynd, auka sjálfsþekkingu og takast á við erfiðar tilfinningar. Feminísk meðferð rýfur þá einangrun sem margir þolendur finna fyrir og hjálpar þeim að öðlast öryggi í félagslegum samskiptum. Allar þær aðferðir sem meðferðin er samsett úr búa yfir þeim eiginleika að auka samkennd þolenda í eigin garð og byggist Núvitundarmiðuð feminísk meðferð á því að sá eiginleiki sé lykillinn að bata. Meðferð sem býður upp á alla þessa eiginleika ætti að vera vel til þess fallin að auka lífsgæði þolenda heimilisofbeldis og telja höfundar að þörf sé fyrir slíkt úrræði hér á landi.
Source: Skemman
Authors: Þóra Sigurðardóttir 1979, Steinunn Garðarsdóttir 1979
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011900588
Cites: 46
Cited by:
Related to: 10