Work

Kvíði : námsgengi og félagatengsl ungs fólks með kvíða

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Kvíði er eitt algengasta heilsufarsvandamál nú til dags og hefur hann aukist til muna meðal fólks síðustu ár og samfara því hefur aðsókn til sálfræðinga aukist. Kvíði hefur gífurlega hamlandi áhrif á einstaklinga sem við hann glíma og sé hann ekki meðhöndlaður getur hann ágerst og fylgt fólki út lífið. Tilgangur skýrslunnar er að varpa ljósi á þær áskoranir sem fólk með kvíða stendur frammi fyrir og kvíðavanda samfélagsins sem og að skoða hvaða meðferðarúrræði eru í boði. Samkvæmt fræðilegum rannsóknum hefur kvíði margs konar áhrif á námsgengi og félagatengsl. Í skýrslunni vildi rannsakandi kanna hvort að svo sé og tók því viðtöl við tvo einstaklinga sem greinst höfðu með kvíða. Segja má að niðurstöður viðtalanna styðja við fyrri rannsóknir að miklu leyti. Niðurstöður viðtalanna leiða einnig í ljós að borið hefur á því að skortur sé á meðferðarúrræðum fyrir fólk með kvíða þá sérstaklega eru langir biðlistar hjá sálfræðingum sem eykur líkur á því að einstaklingar fái ekki viðeigandi meðferð. Þá hefur lyfjanotkun verið í hámæli á Íslandi og virðist kvíðastillandi lyfjum frekar ávísað vegna langrar biðar eftir sálfræðiþjónustu.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020168032
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10