Brotthvarf úr skóla og tengsl við vímuefni og afbrot : greiningar á fjölmiðlaviðtölum við einstaklinga sem lýsa eigin brotthvarfi úr skóla og tengslum sínum við vímuefni og afbrot
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er lokaverkefni til BA-gráðu í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. Fjallað verður um brotthvarf í tengslum við afbrot og fíkniefni og verða nýtt viðtöl við einstaklinga sem hafa birst í fjölmiðlum hér á Íslandi þar sem viðmælendur lýsa sinni upplifun af ferlinu. Verða nýttar bæði fræðigreinar að utan sem og íslenskar skýrslur um brotthvarf til þess að setja upplifun einstaklinganna í samhengi ásamt kenningum um menntakerfið sem geta bent til hvar hefur orðið brestur sem veldur brotthvarfinu. \nNiðurstöðurnar benda til þess að brotthvarf sé ekki þess valdandi að einstaklingar færist yfir í afbrot og/eða neyslu heldur sé það afleiðing afbrota og eða neyslu að hverfa frá námi án þess að ljúka því. Brotthvarfið sjálft virðist svo iðulega eiga sér langan aðdraganda en lýsingar viðmælendanna styðja við þá kenningu að brotthvarf sé ekki stakur atburður heldur einfaldlega loka birtingarmynd aðstæðna sem hófust löngu áður.
Source: Skemman
Author: Ólafur Andri Þórarinsson
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036354580
