Work

Afleiðingar ofbeldis í nánum samböndum : er tekið tillit til afleiðinga þegar ákveða á fjárhæð miskabóta?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi athugar hvort tekið sé tillit til afleiðinga þegar ákveða á fjárhæð miskabóta vegna afleiðinga ofbeldis í nánum samböndum eftir að ákvæðið 218. gr. b var lögfest með lögum nr. 23/2016 um breytingu á almennu hegningarlögum, nr. 19/1940. Ákvæðið tekur heildstætt á ofbeldi í nánum samböndum, hvort sem um ræðir núverandi eða fyrrverandi maka, foreldri, systkini eða aðra nákomna aðila, bæði utan sem innan veggja heimilisins. Við gerð gagnasafnsins voru allir dómar héraðsdómstóla þar sem sakfellt var fyrir brot gegn 218. gr. b rýndir. Um er að ræða 93 dóma, en brotaþolar voru 142 talsins. Dómarnir voru rýndir eftir fyrirfram ákveðnum breytum og notast var við lýsandi tölfræði þegar unnið var úr gögnunum. Niðurstöður sýndu fram á að meirihluti brotaþola voru konur (52,8%) og börn (41,6%) en aðeins 5,6% brotaþola voru karlar. Í samræmi við fyrri rannsóknir var meirihluti gerenda karlar eða 88,2%. Hátt hlutfall (41,3%) gerenda voru foreldrar barna sem voru brotaþolar og 38,5% geranda voru í hjónabandi eða ástarsambandi við brotaþola. Skráðar voru afleiðingar brotaþola og sýndu niðurstöður að algengast var að brotaþoli var með líkamlega áverka (32,5%) og andlega kvilla (22,8%). Þegar skoðað var hvers kyns afleiðingar voru teknar fram hjá hverjum brotaþola má sjá að meirihluti dómanna innihélt skráningu af einni upp í þrjár tegundir afleiðinga hjá þeim sem fengu miskabætur. Þrátt fyrir rétt brotaþola til að krefjast bóta voru 63 sem ekki fóru fram á miskabætur (44,4%) en þar af var 21 barn. Niðurstöður benda til að fjöldi mismunandi afleiðinga og alvarleiki hafi ekki mikil áhrif á fjárupphæð miskabóta sem dæmdar eru brotaþolum í þessum málaflokki. \nLykilorð: ofbeldi í nánum samböndum, afleiðingar, miskabætur, almenn hegningarlög 19/1940
Source: Skemman
Authors: Gerður Björk Sigurðardóttir, Þóra Björg Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Law
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045159142
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10