Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Margbrotið eðli tungumála manna á sér enga hliðstæðu í dýraríkinu. Engin önnur tegund kemst nálægt manninum í myndun flókinna merkingarbærra hljóða. Þættir eins og stór heili, svæði Broca og Wernicke, spegilfrumukerfið og FoxP2 genið eru líffræðiegir eiginleikar tungumála sem hafa varðveist vel í þróun Homo. Varðveisla þessara eiginleika bendir til að félagslegt nám, þar á meðal tungumál, hefur verið mikilvægt í þróunarsögu mannsins. Félagslegt nám manna er þess eðlis að það safnast (e. cumulates) og tekur breytingum með tíma sem er ein helsta forsenda tungumála þar sem einn einstaklingur gæti ekki uppgötvað heilt tungumál á einni ævi. Hvernig tungumál kom til sögunar er enn mikið deiluefni innan líffræðilegrar mannfræði. Margir telja að tungumál hafi að öllum líkindum átt sér sameiginlegan uppruna í Afríku og dreifst um heiminn með útbreiðslu nútímamannsins. Fræðimenn deila um hvort uppruni tungumála hafi verið skyndilegur eða gerst jafnt og þétt í þróunarsögu mannsins. Þeir deila einnig um í hvaða félagslega samhengi tungumál hefur átt upptök sín. Þessi ritgerð sýnir að líklegra er að tungumál hafi þróast hægt yfir tíma í þróunarsögu mannsins en orðið mun flóknara með komu nútímamannsins þar sem menningarleg þróun mótaði tungumál í það sem þekkist í dag.
Source: Skemman
Author: Jóhann Sigurður Jóhannsson 1992
Language: Icelandic
Subfield: Cultural Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047764941
