Methicillin ónæmur Staphylococcus aureus: Faraldur á Vökudeild Barnaspítala Hringsins 2015
Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Methicillin ónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA) hefur skipað sér sess sem meinvaldur á nýburagjörgæsludeildum og hefur nýgengi farið vaxandi víða um heim á undanförnum árum. Sjúklingar á nýburagjörgæslum eru oft fyrirburar, hafa lága fæðingarþyngd og eru með ýmsa íhluti. Þessir þættir hafa verið tengdir við auknar líkur á MÓSA-sýklun og -sýkingu. Þeir nýburar sem sýklast af MÓSA eru líklegri til að sýkjast og því er mikilvægt að koma í veg fyrir sýklun. MÓSA-faraldur kom upp á Vökudeild Barnaspítala Hringsins árið 2015 og miðar þessi rannsókn að því að varpa ljósi á upphaf faraldursins, hverjir sýkluðust/sýktust, skilgreina áhættuþætti og smitleiðir, sem og stofna bakteríunnar sem olli faraldrinum. \nEfni og aðferðir: Á sex mánaða tímabili, 1.3.2015-31.8.2015, lágu 192 sjúklingar inni á Vökudeild Barnaspítala Hringsins. Af þeim voru 97 skimaðir fyrir MÓSA og voru úrtak rannsóknarinnar. Niðurstöður úr MÓSA-leit voru skráðar. Næmispróf var framkvæmt á jákvæðum sýnum og þau spa-týpugreind. Upplýsingum var safnað úr sjúkraskrám um undirliggjandi sjúkdóma, fæðingarþyngd, meðgöngulengd, íhluti og dagafjölda með hvern þeirra, sýklalyf/sveppalyf/barkstera og lengd meðferðar, hvort sjúklingar væru einburar eða fjölburar og hvort þeir hefðu verið teknir með keisaraskurði eða ekki. Einnig voru legustaðir á Vökudeild skráðir og lengd legu. \nNiðurstöður: Níu börn og sjö foreldrar voru sýkluð af MÓSA en enginn sýktist. Allir heilbrigðisstarfsmenn voru neikvæðir. Tvær spa-týpur greindust, t253 og t4845. Týpurnar höfðu ólíkt sýklalyfjanæmi. Átta börn og sex foreldrar höfðu spa-týpu t253 en eitt barn og annað foreldri þess spa-týpu t4845. MÓSA ræktaðist frá 12 umhverfissýnum á Vökudeild. Öll sýkluðu börnin fengu mupirocin upprætingarmeðferð, með eða án klórhexidín-þvotts. Upprætingarmeðferð bar árangur hjá 4/9 en 3/9 voru enn jákvæðir við síðustu sýnatöku. Börn sem sýkluðust fæddust léttari og eftir styttri meðgöngu en þau sem ekki sýkluðust. Þau lágu einnig lengur á Vökudeildinni. Tengsl voru á milli MÓSA-sýklunar og slagæðaleggs, barkarennu, „continuous positive airway pressure“ (CPAP) og Highflow súrefnismeðferðar. Af sýkluðum börnum voru 6/9 fyrirburar og 6/9 höfðu lága fæðingarþyngd (<2500 g). Andnauðarheilkennni nýbura og nýburagula voru algengustu undirliggjandi sjúkdómar þeirra sem sýkluðust. \nÁlyktanir: Tvær mismunandi spa-týpur greindust á Vökudeildinni, hvorug þeirra hefur greinst áður á Íslandi. MÓSA-faraldurinn á Vökudeild Barnaspítala Hringsins 2015 er líklega stærsti faraldur sem lýst hefur verið af völdum spa-týpu t253 í heiminum. Regluleg MÓSA-skimun inniliggjandi sjúklinga er mikilvæg svo hægt sé að bera snemma kennsl á sýklaða sjúklinga og grípa til viðeigandi aðgerða. Upprætingarmeðferð í ungbörnum og fyrirburum er ekki vel stöðluð, kjörmeðferð er oft illfáanleg og árangurinn af meðferðinni því takmarkaður.
Source: Skemman
Author: Íris Kristinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Infectious Diseases
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: methicillin-resistant Staphylococcus aureus, MRSA outbreak, neonatal intensive care unit, neonatal infection, infection control, transmission routes, risk factors, MRSA screening, MRSA genotyping, outbreak investigation, neonates, nosocomial infections, environmental cleaning, hand hygiene
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048749375
