Próffræðilegir eiginleikar þriggja kvarða sem meta einkenni á sviði áráttu- og þráhyggju í úrtaki 12-16 ára unglinga
Year: 2009
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna próffræðilega eiginleika þriggja kvarða sem notaðir eru til þess að meta áráttu- og þráhyggjueinkenni hjá unglingum. Þeir voru Þráhyggjukvarði Leytons fyrir börn og unglinga (Leyton Obsessional Inventory- Child Version; LOI-CV), Styttri útgáfa Þráhyggjukvarða Leytons fyrir börn og unglinga (Short Leyton Obsessional Inventory- Child Version; SLOI-CV) og Stutti áráttu og þráhyggjukvarðinn (Short OCD Questionnaire; SOC. Listarnir voru lagðir fyrir 127 unglinga á aldrinum 12-16 ára ásamt þungyndiskvarða CES-DC (Center for Epidemiological Studies Depression Scale for Children) til þess að athuga aðgreiningarréttmæti kvarðanna.
Source: Skemman
Author: Rut Vilhjálmsdóttir 1979
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7051966253
