Uppeldi foreldra og geðheilsa barna og ungmenna. Áhrif uppeldisaðferða foreldra á geðheilsu barna og ungmenna
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um uppeldi og þær uppeldisaðferðir sem foreldrar nota til að ala upp börn sín og áhrif þeirra á eiginleika og geðheilsu barna, bæði í nútíð og þegar fram líða stundir. Uppeldi er skilgreint og farið er yfir þá þætti sem rannsóknir hafa sýnt fram á að hafi áhrif á uppeldi. Sálfræðingur að nafni Diana Baumrind var brautryðjandi á sviði rannsókna á þroska barna og hafa rannsóknir hennar haft mikil áhrif á þekkingu okkar á því hvernig ólíkar uppeldisaðferðir, sem hún greindi hjá foreldrum, hafa áhrif á þroska og líðan barna. Uppeldisaðferðir Baumrind eru enn í dag grunnurinn að flestum rannsóknum og greiningum á sviði uppeldis, en í ritgerðinni verður farið yfir þróun á uppeldisaðferðum hennar, þær útlistaðar og áhrifaþættir hverrar aðferðar rýndir. Farið verður yfir hvernig Baumrind, ásamt öðru fræðifólki, hafa þróað og byggt ofan á grunnlíkan Baumrind um uppeldisaðferðirnar; leiðandi, skipandi, eftirlátt og afskiptalaust uppeldi. Farið verður yfir helstu uppeldisaðferðir sem hafa verið notaðar í gegnum tíðina og hvernig rannsóknar á uppeldi hafa breyst til hins betra, þar sem skilningur á uppeldi er orðinn meiri og dýpri. Einnig verður farið yfir helstu valda geðheilsuvandamála í æsku og hvað þarf að vera til staðar í uppeldi svo börn og ungmenni hafi tækifæri til meðal annars góðrar geðheilsu. Farið verður yfir þau úrræði sem eru í boði fyrir foreldra og börn sem stuðla að bættri foreldrafærni og samskiptum milli foreldra og barna. Að lokum verða niðurstöður ritgerðar dregnar saman í lokakafla. Helstu niðurstöður eru þær að uppeldisaðferðir foreldra hafa veruleg áhrif á geðheilsu barna og ungmenna og mótun hvoru tveggja þeirra eiginleika sem styðja við góða geðheilsu og þeirra sem ýta undir slæma geðheilsu.
Source: Skemman
Author: Eva Huld Halldórsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053352335
