Áhrif neyslu sætuefna á líkamsþyngd fullorðinna: fræðileg samantekt. Eru sætuefni fýsilegur kostur til þyngdarstjórnunar?
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Sætuefni eru algeng aukaefni með lágu eða engu innihaldi hitaeininga. Framboð matvæla og drykkja sem innihalda sætuefni hefur aukist til muna undanfarin ár. Neysla sætuefna í stað sykurs hefur aukist samhliða vitundarvakningu í samfélaginu um takmörkun á neyslu sykurs og heilbrigðari lífsstíl. Sætuefni eru notuð meðal annars í þeim tilgangi að minnka orkuinntekt og hafa þannig áhrif á þyngd. Offita er vaxandi vandamál í heiminum og þörf fyrir þyngdarstjórnunarúrræði orðin gífurlega mikil. Rannsakendur hafa ekki komið sér saman um hver áhrif þeirra séu á þyngd eða hvort þau séu í raun fýsilegur kostur til þyngdarstjórnunar. Markmið: Að gera grein fyrir áhrifum sætuefna á þyngd fólks, auk þess að kanna árangur mismunandi sætuefna til þyngdarstjórnunar með því að samþætta niðurstöður 15 megindlegra rannsókna. Helstu væntingar með samantektinni voru að auka skilning almennings og heilbrigðisstétta á viðfangsefninu. Efnið var sett fram með það að markmiði að efla getu hjúkrunarfræðinga til að veita heildrænan lýðheilsustuðning og fræðslu í samfélaginu. \nAðferðir: Unnin var fræðileg samantekt út frá rannsóknarspurningunni: „Eru tengsl á milli neyslu sætuefna hjá fullorðnum og þyngdarbreytinga?“ sem var mótuð út frá PICO ramma. Inntöku- og útilokunarskilyrði voru sett fram. Efnisleit og leitarorð voru þróuð út frá rannsóknarspurningu þar var aftur notast við PICO. Kerfisbundin heimildaleit var framkvæmd í tveimur rafrænum gagnagrunnum, PubMed og Web of Science og leitast eftir greinum frá árunum 2013-2023. Eftir söfnun heimilda var farið yfir 208 heimildir sem fengust úr leitinni, skimunin var þríþætt, skimun titla, úrdrátta og heildartexta. 15 greinar mættu inntökuskilyrðum. Til að samþætta niðurstöður rannsókna og móta umfjöllun var notast við matrix töflu. \nNiðurstöður: Fjórar rannsóknir gáfu til kynna marktæka lækkun á líkamsþyngd hjá þátttakendum. Niðurstöður níu rannsókna gáfu til kynna ómarktæka breytingu á þyngd þátttakenda. Tvær rannsóknir sem skoðuðu afturvirka greiningu gagna gáfu niðurstöður um þyngdaraukningu við sætuefnaneyslu. Ályktun: Þrátt fyrir að sætuefni séu eitt af mest rannsökuðu aukaefnum í matvælum sýna niðurstöður rannsókna ekki fram á nægilega skýr áhrif þeirra á líkamsþyngd neytenda. Við teljum líklega ástæðu þess að þær rannsóknir séu ekki nægilega sérhæfðar. Vegna óljósra niðurstaðna teljum við þörf á að framkvæmdar verði ítarlegri rannsóknir, til dæmis hvað varðar áhrif aldurs. \nLykilorð: Sætuefni, líkamsþyngd, þyngdarstjórnun, ofþyngd, offita.
Source: Skemman
Authors: Heiðdís Hlíf Hjaltadóttir, Helga Margrét Gísladóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Pharmacology (medical)
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054479650
