Áhrif svefns á lífsánægju og vellíðan ungmenna á grunnskólaaldri
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Nægilegur svefn er talinn nauðsynlegur þáttur og eitt af grundvallaratriðunum þegar kemur að heilsu og lífsgæðum ungmenna. Svefn er talin hafa áhrif á andlegan, líkamlegan, tilfinningalegan og félagslegan þroska barna. Á unglingsárum fer svefnlengd minnkandi hjá eldri ungmennum sem leiðir oft til ýmisskonar vanlíðanar. Svefnleysi hefur verið tengt við geðræn vandamál eins og kvíða, þunglyndi, ofvirkni og athyglisvanda. Einnig getur svefnleysi ýtt undir áhættuhegðun, hegðunarvandamál, og áfengis- og fíkniefnaneyslu. Mikilvægt er að skoða þætti sem geta haft áhrif á svefn og líðan ungmenna til að komast að því hvernig er hægt að fyrirbyggja og koma í veg fyrir röskun á svefni og líðan barna. Það er hægt að gera með því að átta sig á tengslum svefns við aðrar breytur. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða tengsl svefns við lífsánægju og vellíðan á barna á grunnskólaaldri. \nAðferð: Notast var við gögn úr HBSC rannsókn sem var lögð fyrir nemendur 6. bekkjar, 8. bekkjar og 10. bekkjar árið 2018. Öllum grunnskólum á landinu var boðið að taka þátt. Úrtakshópurinn er því stór, 6102 nemendur, og endurspeglar vel skiptingu ungmenna á Íslandi þegar kemur að kyni og búsetu. Breyturnar sem notast var við í þessari rannsókn voru aldur, kyn, búseta, fjölskyldugerð og efnahagsstaða fjölskyldu. Þessar breytur voru svo rannsakaðar í tengslum við svefnlengd, hvort nemendur næðu viðmiðum um lágmarks svefnþörf. Einnig voru þessar breytur rannsakaðar í tengslum við vellíðan og lífsánægju. Notast var við SPSS forritið við úrvinnslu gagna og voru framkvæmd tölfræðiprófin kí-kvaðrat og Pearsons r fylgnistuðull. \nNiðurstöður: Svefnlengd nemanda fer minnkandi með hækkandi aldri og ungmenni í 6. bekk og 8. bekk ná meiri svefni en ungmenni í 10. bekk. Flestir nemendur í 6. bekk og 8. bekk ná ráðlögðum viðmiðum um svefnlengd en aðeins rétt rúmlega helmingur nemenda í 10. bekkjar ná þessum viðmiðum. Þegar lífsánægja er mæld kemur í ljós að ungmenni í 6. bekk eru ánægðust og fer lífsánægja dvínandi með hækkandi aldri. Einnig líður nemendum í 6. bekk oftast vel í skólanum og síðan dregur úr góðri líðan í skóla með hækkandi aldri. Þegar kemur að tengslum á milli lífsánægju og svefnlengdar er hægt að finna marktæka veika jákvæða fylgni í öllum hópum. \nÁlyktanir: Hægt er að álykta að ungmenni sem sofa lengur meta lífsánægju sína meiri. Í niðurstöðum var að finna marktækan mun í öllum hópum, en þó er þörf á frekari rannsóknum um áhrifaþætti svefns og lífsánægju.
Source: Skemman
Authors: Hulda María Albertsdóttir, Jenny Lyn Leonen Marquez
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054569263
