Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Einmanaleiki er útbreitt vandamál í heiminum og er talið að einn af hverjum þremur eldri borgurum finni fyrir einmanaleika. Rannsóknir hafa sýnt að einmanaleiki og félagsleg einangrun hafa margvísleg neikvæð áhrif á heilsu. Þessir þættir geta haft áhrif á sjúkdóma, líkamlega heilsu og sálfélagslega líðan sem geta haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér. \nTilgangur: Í fyrsta lagi var skoðað hvort einmanaleiki sé áhættuþáttur fyrir hjarta- og æðasjúkdómum og í öðru lagi var skoðað hvort einmanaleiki hafi áhrif á framgang hjarta- og æðasjúkdóma. \nAðferð: Gerð var fræðileg samantekt þar sem notast var við gagnabankana Pubmed og Scopus við leit að rannsóknum. Leitað var að megindlegum og eigindlegum rannsóknum sem birtar voru á árunum 2018-2023. Einungis voru skoðaðar greinar sem fjölluðu um áhrif einmanaleika og/eða félagslega einangrun á hjarta- og æðasjúkdóma, eða dánartíðni af völdum allra orsaka. \nNiðurstöður: Tólf rannsóknir stóðust inntökuskilyrðin. Þrjár rannsóknir voru gerðar í Englandi, tvær í Danmörku, tvær í Ástralíu, ein í Finnlandi, ein í Svíþjóð, ein í Þýskalandi, ein í Taívan og ein í Bandaríkjunum. Ellefu af 12 rannsóknum komust að þeirri niðurstöðu að einmanaleiki getur haft áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma bæði sem áhættuþáttur og á framgang þeirra. Svo virtist sem einstaklingar sem eru einmana væru líklegri til þess að deyja úr hjarta- og æðasjúkdómum en þeir sem væru ekki einmana. Rannsóknirnar sýna einnig að mikill einmanaleiki tengdist meiri áhættu á að þróa með sér hjarta- og æðasjúkdóma. \nÁlyktun: Niðurstöður samantektarinnar sýna að mikilvægt er að skoða einmanaleika líka sem áhættuþátt fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Rannsóknirnar eru nýlegar og mikilvægt að þessi þekking komist til skila til hjúkrunarfræðinga og þeir þekki til skaðlegra áhrifa slæmrar félagslegrar heilsu. \n \n \n \nLykilorð: Einmanaleiki, félagsleg einangrun, hjarta- og æðasjúkdómar, áhættuþættir, framgangur sjúkdóma, félagsleg heilsa, sálfélagslegir þættir, hjúkrun.
Source: Skemman
Authors: Katrín Unnsteinsdóttir, Þórey Ásgeirsdóttir, Bergdís Elín Peiser Ívarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054636772
