Work

Barneignir og svefnleysi: Áhrif á andlega líðan og þróun tengsla

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Fyrstu mánuðirnir eftir fæðingu barns geta verið krefjandi fyrir nýbakaðar mæður. Ungbarn þarf umönnun á nokkurra klukkustunda fresti allan sólarhringinn, sem leiðir til þess að mæður ná ekki nema tveggja til fimm klukkustunda samfelldum svefni. Svefnleysið sem fylgir barneignum getur reynt verulega á andlega heilsu móður auk þess sem vitsmunaleg virkni hennar skerðist. \n \nTilgangur þessarar fræðilegu samantektar var annars vegar að skoða áhrif svefnleysis á andlega heilsu móður og hins vegar áhrif svefnleysis á tengslamyndun móður og barns. Auk þess vildu höfundar skoða hvaða úrræði stæðu til boða fyrir svefnlausar mæður. Heimilda var aflað í gegnum gagnasöfnin PubMed, EBSCOhost, Scopus, Cinahl og Google Scholar, ásamt fræðibókum, á tímabilinu október 2017 til maí 2018. \n \nHelstu niðurstöður samantektarinnar sýndu fram á neikvæð áhrif svefnleysis bæði á andlega heilsu móður og tengslamyndun móður og barns. Mæður sem þjáðust af svefnleysi voru líklegri til að þróa með sér fæðingarþunglyndi og í kjölfarið mynda verri tengsl við barnið. Þunglyndar mæður voru síður vakandi fyrir þörfum nýburans og brugðust hægar við sem kom niður á tengslum á milli móður og barns. Svefnlausar mæður voru einnig líklegri til að þróa verri tengsl við barnið þrátt fyrir að breytan um fæðingarþunglyndi væri tekin út. Það er því ljóst að svefnleysi eitt og sér getur haft veruleg áhrif á velferð bæði móður og barns. \n \nÞað er mat höfunda að markviss skimun fyrir svefnleysi á meðgöngu og eftir barnsburð gæti skilað góðum árangri til bættrar heilsu. Mikilvægt er að skima fyrir fæðingarþunglyndi, sem er nú þegar gert níu vikum eftir fæðingu og bregðast við niðurstöðum á viðeigandi hátt. Auk þess gæti almenn fræðsla um svefn og svefnvenjur til verðandi og/eða nýbakaðra foreldra skilað góðum árangri. \n \nLykilorð: Svefnleysi, andleg heilsa, fæðingarþunglyndi, tengsl, tengslamyndun móður og barns, úrræði og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
Source: Skemman
Authors: Kristín Björg Róbertsdóttir 1990, Valdís Guðmundsdóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054844322
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10