Auðginnt er barn í bernsku sinni. Vangaveltur um siðferði auglýsinga sem beint er til barna
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð snýst um siðfræði, börn og auglýsingar. \nSiðfræðingar sem og sérfræðingar í málefnum markaðarins og barna hafa velt því fyrir sér hvort það sé siðfræðilega forsvaranlegt að beina auglýsingum að börnum. Meirihluti þeirra svara þessari spurningu neitandi, en engu að síður fer auglýsingum fyrir börn fjölgandi. \nÍ þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á muninn á siðferðilegum viðhorfum til auglýsinga annars vegar og raunverulegri hegðun á íslenskum auglýsingamarkaði hinsvegar. Nánar tiltekið er gengið út frá þremur rannsóknarspurningum \n \n1.\tTelja siðfræðingar það siðlegt að beina auglýsingum að börnum? \n2.\tTelja hlutaðeigandi aðilar á Íslandi, nánar tiltekið hið opinbera og auglýsendur, að auglýsingar sem beinast að börnum eigi rétt á sér? \n3.\tHvernig ríma viðhorf siðfræðinga við viðhorf hagsmunaaðila á Íslandi? \n \nViðhorf gagnrýnenda markaðsstarfs sem beint er að börnum eru skoðuð og borin saman við viðhorf markaðsafla. Fjölmiðlalöggjöf á Íslandi er skoðuð í samhengi rannsóknarspurninga og eins siðareglur Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og samanburður gerður. Loks eru greinar fræðimanna í markaðsmálum og siðfræði skoðaðar og bornar saman við veruleikann hérlendis.
Source: Skemman
Author: Bóas Hallgrímsson 1980
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7054884567
