Work

Hver eru áhrif Instagram á sjálfsmynd kvenna á aldrinum 18-30 ára á Íslandi?

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Samfélagsmiðlar eru orðnir gríðarlega vinsælir og gegna stóru hlutverki í lífi margra. Í ljósi þess að við teljum að samfélagsmiðlar, líkt og Instagram, stýri því að miklu leyti hvernig við eigum samskipti hvert við annað, fannst okkur áhugavert að skoða áhrif þeirra á ungar íslenskar konur. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hver áhrif notkunar samfélagsmiðilsins Instagram eru á sjálfsmynd ungra kvenna á aldrinum 18-30 ára á Íslandi. Áhrifin verða skoðuð út frá þremur meginþemum; félagslegum samanburði, sjálfsmynd og sjálfsframsetningu á Instagram. Framkvæmd voru fjögur eigindleg viðtöl í formi rýnihópa með fimm til átta þátttakendum í hvorum hóp, viðmælendur voru bæði karlar og konur á aldrinum 18-24 ára og 25-30 ára. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru að notkun Instagram virðist hafa neikvæð áhrif á sjálfsmynd ungra kvenna, þar sem endurgjöf í formi „like“ og athugasemda skiptir þær mun meira máli en karla. Einnig eru konur mun líklegri til þess en karlar að bera sig saman við aðra á Instagram og finna sig knúnar til þess að deila einungis því sem er jákvæðast úr sínu lífi með öðrum á Instagram, með það að markmiði að fá jákvæða endurgjöf, til þess að bæta sjálfsmynd sína og sjálfstraust. Allir viðmælendur voru þó sammála um að notkun Instagram hefði að öllum líkindum mun neikvæðari áhrif á sjálfsmynd ungra stúlkna á grunnskólaaldri, þar sem sjálfsmynd þeirra er enn að mótast á þeim aldri.
Source: Skemman
Authors: Ástdís Pálsdóttir 1993, Ína María Einarsdóttir 1993, Karen Elísabet Friðriksdóttir 1993
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056964322
Cites: 50
Cited by:
Related to: 10