Hlutverk orðhlutavitundar í lestrarnámi Niðurstöður úr langtímarannsókn á þroska, máli og læsi grunnskólabarna
Year: 2012
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessari grein verða kynntar niðurstöður úr langtímarannsókn á þroska, máli og læsi fjögra til átta ára barna. Rannsóknin öll spannar þrjú ár og er ætlað að draga upp heildarmynd af stöðu leik- og grunnskólabarna á nokkrum lykilsviðum þroska og kanna tengsl þeirra við þróun læsis og gengi í námi almennt. Í þessum hluta rannsóknarinnar mun athyglin beinast að þróun orðhlutavitundar á fyrstu árum grunnskólans og hvernig færni nemenda á því sviði tengist lestrarnámi þeirra. Einkum er spurt hvenær börn fara að ná tökum á þessari hlið málvitundar og hvernig hún tengist ólíkum þáttum lestrarferlisins eins og umskráningarfærni, lesskilningi og stafsetningu. Þátttakendur voru 111 börn úr fjórum skólum í Reykjavík. Orðhlutavitund var metin í öðrum og þriðja bekk en auk þess voru mælingar á hljóðkerfisvitund, umskráningu, lesskilningi og stafsetningu lagðar fyrir á sama tíma. Helstu niðurstöður voru að nemendurnir áttu almennt í nokkrum erfiðleikum með að leysa orðhlutavitundarverkefnið í öðrum bekk en meðalhlutfall réttra svara var 50%. Frammistaða í prófinu gaf sterka vísbendingu um gengi nemandanna í lestri ári síðar, sérstaklega í lesskilningi. Talsverðar framfarir urðu á getu nemendanna við að leysa prófið á milli annars og þriðja bekkjar en í þriðja bekk svöruðu börnin að meðaltali 68% atriða rétt. Niðurstöðurnar benda til þess að næmi barna fyrir orðhlutum hafi áhrif á lestrarnám þeirra og því sé mikilvægt að gera þeim þætti góð skil í lestrarkennslu.
Source: Skemman
Author: Freyja Birgisdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1546826342
