Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi ásamt námsvefnum Eðlisfræðivefurinn – Námsefni í rafsegulfræði á framhaldsskólastigi, https://edlisfraedi.com, er lokaverkefni til M.S.-prófs í menntun framhaldsskólakennara. Eðlisfræðivefurinn er vefsíða sem inniheldur námsefni í rituðu máli og myndbönd sem notuð eru í kennslu og námi. Vefsíðan inniheldur einnig verkefni sem hægt er að vinna eftir áhorf myndbandanna. Markmið verkefnisins er að búa til rafrænt námsefni sem hentar í eðlisfræðikennslu á framhaldsskólastigi. Eðlisfræðivefurinn var unnin af höfundi og efnisinnihald aðallega þýtt úr 7. útgáfu bókarinnar Physics, Principles with Applications eftir Douglas C. Giancoli. Verkefni, dæmi og tilraunir voru ýmist þýdd úr sömu bók, búin til af höfundi og/eða í samvinnu við fyrrverandi samkennara. Námsvefurinn hefur margþætta eiginleika sem styðja kennara í fjölbreyttum kennsluháttum og ýtir undir nemendamiðað nám. Ritgerð þessi er greinargerð um námsvefinn. Kannað er námsefni sem íslenskir framhaldsskólar styðjast við í eðlisfræðikennslu og uppsetningu þess. Fjallað verður um megintilgang námsvefjarins, efnisval hans, efnistök, kennsluhætti sem hann styður og hugmyndir að fjölbreyttum kennsluaðferðum innan námsefnisins.
Source: Skemman
Author: Vera Pálsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Information Systems
Field: Computer Science
Domain: Physical Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6985909106
