Það er miklu oftar sem það batnar : áhrif bjartsýni og rökvillna á áreiðanleika verkefnastjóra
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Í þessu verkefni er sjónum beint að ómeðvituðum mannlegum þáttum sem geta leitt til þess að áreiðanleiki verkefnastjóra verður minni en ásættanlegt er. Horft er til þess hversu hátt hlutfall verkefna mislukkast og velt er upp spurningum um ástæður þess. Farið er yfir nokkrar rökvillur eða áætlanagildrur og sýnt fram á hvernig þær geta bjagað ákvarðanatöku og gerð áætlana. Meðal þessara gildra er akkerisbinding (anchoring) þar sem óskyldar upplýsingar geta haft áhrif á ákvörðun og kenningin um horfur (prospect theory) sem sýnir fram á að áhættusækni er mun meiri þegar kemur að tapi en gróða. Áhrif bjartsýni á mannshugann er skoðuð og sýnt fram á að þrátt fyrir mjög jákvæð áhrif getur hún leitt menn til óraunhæfra ákvarðana. Tekin voru nokkur viðtöl við fólk sem starfar að áætlanagerð, viðhorf þess skoðuð og rýnt í jarðveg fyrir rökvillur og bjartsýni á Íslandi. Í ljós kom að margt má betur fara en ástandið er þó langt frá því að vera alslæmt.
Source: Skemman
Author: Jóhannes Pétur Héðinsson 1979-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: General Decision Sciences
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988239560
