Work

Áhrif gervigreindar á markaðsgeirann

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um áhrif gervigreindar á framtíð markaðsstarfa og könnuð eru bæði tækifæri og áskoranir sem fylgja því að innleiða slíka tækni í markaðssetningu. Með því að greina núverandi notkun gervigreindar í markaðsstörfum, ásamt þróun og væntanlegri framtíðarsýn, leitast ritgerðin við að svara rannsóknarspurningunum: „Hvernig mun gervigreind breyta framtíð markaðsstarfa“ og „hvaða áskoranir og tækifæri fylgja notkun gervigreinda í markaðsgeiranum?" \nÍ gegnum greiningu á fræðilegum heimildum og dæmum úr atvinnulífinu er skoðað hvernig gervigreind getur aukið nákvæmni og skilvirkni í markaðsrannsóknum, bætt persónuleg samskipti við viðskiptavini og stuðlað að skapandi og árangursríkum markaðsherferðum. Jafnframt er fjallað um mikilvægi siðferðislegra og persónuverndarlegra sjónarmiða í notkun gervigreindar, þar sem áhersla er lögð á nauðsyn þess að framfylgja gagnsæi, ábyrgð og viðurkenndum siðferðisviðmiðum. \nFyrst verður kafað ofan í hugtakið markaðsfræði og það skilgreint en síðan er farið í hugtakið markaðshneigð og þrjár víddir markaðshneigðar útskýrðar. Einnig er komið inn á markaðslega færni og að lokum er greint frá störfum markaðsstjóra og helstu verkefnum sem fylgja því starfi. \nÍ seinni fræðilega kaflanum er gervigreindin útskýrð á sem einfaldastan hátt, fjallað um sögu gervigreindar frá upphafi, hvar hún er stödd í dag og síðan greint frá mismunandi tegundum hennar. \nNiðurstöður ritgerðarinnar undirstrika að gervigreind býður upp á mikla möguleika í markaðsstörfum, en krefst einnig umhugsunar um siðferðileg álitamál og ábyrga nýtingu. Framtíðarsýn gervigreindar í markaðsstörfum er metin björt, með þeim fyrirvara að stjórnendur og markaðsfólk sé meðvitað um þær áskoranir sem fylgja og sé tilbúið að takast á við þær, á ábyrgan hátt.
Source: Skemman
Author: Einar Geir Einarsson
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989065653
Cites: 37
Cited by:
Related to: 10