Hollusta flugliða Icelandair: Atriði sem hafa áhrif á tilfinningabundna, stöðubundna og skyldubundna hollustu
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hollusta hefur sterk tengsl við þegnhegðun og starfsmannaveltu innan skipulagsheilda. Allen og Meyer (1990) skiptu hollustu niður í þrjá þætti; tilfinningabundna, stöðubundna og skyldubundna hollustu. Erlendis hafa fjölmargar rannsóknir verið gerðar á hollustu starfsmanna við skipulagsheildir en fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu sviði hér á landi. Í þessari rannsókn voru atriði sem tengjast hollustu flugliða skoðuð. Markmið rannsóknar var að kanna tengsl hollustu við lýðfræðilegar breytur. Skoðað var hvort munur væri á hollustu flugliða sem komu úr grasrót Icelandair og annara flugliða fyrirtækisins. Einnig var athugað hvort fjölskyldutengsl flugliða innan Icelandair hafi áhrif á hollustu. \n\t \nÞátttakendur voru 281 flugliðar hjá flugfélaginu Icelandair. Notast var við spurningalista Meyer, Allen og Smith (1993) til þess að mæla hollustuþættina þrjá. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þrjár lýðfræðilegar breytur; menntun, aldur og starfsaldur höfðu tengsl við hollustu flugliða Icelandair. Hins vegar höfðu breyturnar kyn og starfshlutfall engin tengsl við hollustu flugliða fyrirtækisins. Það hvort flugliðar kæmu úr grasrót Icelandair hafði ekki áhrif á hollustu þeirra við fyrirtækið. Að sama skapi höfðu fjölskyldutengsl flugliða innan Icelandair ekki áhrif á hollustu þeirra til fyrirtækisins.
Source: Skemman
Author: Sigurður Hlíðar Rúnarsson 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: organizational commitment, affective commitment, continuance commitment, flight attendants, Icelandair, organizational justice, job satisfaction, organizational culture, organizational values, organizational climate, organizational change, organizational learning, organizational development, organizational communication, organizational leadership, organizational control, organizational behavior, organizational behavior management, organizational behavior modification, organizational behavior change
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991479503
