Work

Kremgrunnur : þróunarferli og framkvæmd prófana til að meta gæði ýrulausnar

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Alþjóðlegi snyrtivöruiðnaðurinn hefur verið í miklum vexti unadanfarin ár. Vegna mikillar samkeppni sem ríkir á markaðnum sem og breytilegrar eftirspurnar neytenda, hafa fyrirtæki aukið forskot á samkeppnisaðila nái þau að stytta tímann frá vöruþróun til markaðar. Fyrirtæki á þessu sviði hafa því verið að nota tilbúna grunna í vaxandi mæli, sem gerir þeim kleift að koma vörum sínum fyrr á markað og með lægri kostnaði en ella. Markmið rannsóknarinnar sneri að þróun og tilraunaframleiðslu á kremgrunni útbúnum úr efnum af náttúrulegum uppruna og einnig viðeigandi prófunum, sem veita innsýn inn í gæði afurðarinnar. Strax eftir framleiðslu sýndi afurðin fram á ákjósanlega eiginleika hvað varðar útlit og áferð. Mæling á heildarfjölda örvera bendir til hreinleika hráefnanna og að framleiðsluferli hafi farið fram í samræmi við góða framleiðsluhætti (GMP). Viðbætt efni á formi vatns og olíu virtust ekki valda greinilegum óstöðugleika á afurðina eftir framkvæmd sjónmats. Nánari skoðun á dropastærð, bendir þó til þess að viðbætt olía veldur myndun á nokkrum stærri dropum dreifða fasans. Þegar á heildina er litið gefa niðurstöður dýrmæta innsýn inn í gæði kremgrunnsins og eiginleika hans, sem í framtíðinni verða nýttar til framleiðslu á kremgrunni á iðnaðarskala.
Source: Skemman
Author: Aleksandra Borchert
Language: Icelandic
Subfield: Food Science
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992143878
Cites: 21
Cited by:
Related to: 10