Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Eitt af meginmarkmiðum náttúruvísindakennslu í grunnskólum landsins er að stuðla að jákvæðum viðhorfum nemenda gagnvart náttúrugreinum með því að efla og viðhalda áhuga og forvitni nemenda. En hvað er það sem vekur áhuga nemenda? Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvað vekur áhuga nemenda á unglingastigi grunnskóla þegar kemur að kennslu náttúrugreina. Leitast verður við að öðlast skilning á því hvað stuðlar að jákvæðum viðhorfum nemenda gagnvart náttúrugreinum og vekur áhuga með því að horfa lengra en á einstaka viðfangsefni og greinar innan sviðsins. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð. Gagna var aflað með þremur hálfstöðluðum einstaklingsviðtölum við kennara á unglingastigi, þremur hálfstöðluðum rýnihópaviðtölum við tíu nemendur á unglingastigi grunnskóla, ásamt þremur vettvangsathugunum. Niðurstöður rannsóknarinnar skiptast í fjögur þemu, það fyrsta er áhrif kennsluhátta á viðhorf nemenda. Annað þemað er námsumhverfi og inntak kennslunnar. Þriðja þemað er skilningur og tilgangur náms og það fjórða var kennarinn sjálfur. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kennsla sem byggir á góðu jafnvægi verklegra athugana, innlagna kennara, samvinnu nemenda og virkum umræðum stuðli að auknum áhuga nemenda gagnvart námi í náttúruvísindum. Þá varpa niðurstöðurnar ljósi á mikilvægi þess að kennarar hugi vel að námsumhverfinu og því hvernig efnið er sett fram fyrir nemendur, þar sem niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að skilningur nemenda á efninu og því hvers ætlast sé til af þeim hafi gríðarleg áhrif á áhuga þeirra á faginu. Jafnframt varpa niðurstöður rannsóknarinnar ljósi á ákveðna skekkju þegar kemur að áhugavekjandi kennslu annars vegar og árangursríkrar kennslu hins vegar. Þá virðist skipta miklu máli að nemendur sjái nytsemi í því sem þeim er ætlað að læra og komi auga á tengsl þess við daglegt líf.
Source: Skemman
Author: Hrannar Rafn Jónasson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996272718
